Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 68
68 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 TÍMAMÓT VÍTT OG BREITT UM VERÖLDINA Octavio Jones/Reuters Haldið verður upp á 100 ára afmæli Disney-kvikmyndaversins árið 2023 með sjónarspili á kvöldin í skemmtigörðum fyrirtæk- isins, sýningum á munum úr kvikmyndum í söfnum í Bandaríkjunum og erlendis og söngvateiknimyndinni Wish. Francesca Volpi fyrir The New York Times Frá og með 16. janúar munu gestir í Feneyjum þurfa að skrá sig fyrir fram og borga gjald fyrir að heimsækja borgina. „Stríð, hvaða gagn gerir það?“ söng Edwin Starr fullum hálsi árið 1970 – eða „War, what is it good for?“ eins og það hljómaði á ensku. Svarið er það sama í dag og fyrir rúmum 50 árum. „Nákvæm- lega ekkert!“ eða „Absolutely nothing!“ Þrátt fyrir það réðst Vladimír Pútín, forseti Rússlands, að tilefnislausu inn í Úkraínu og er talið að 40 þúsund almennir borgarar hafi nú þegar látið lífið og 30 milljónir til viðbótar misst heimili sín. Eftir því sem átökin teygja sig inn í veturinn hafa Rússar tekið upp þá hernaðaraðferð að ráðast á lykilinnviði í Úkraínu og hafa millj- ónir manna verið án rafmagns, hita og vatns langan tíma í senn. En Pútín fær ekki flúið söguna og innri klofningur og fækkun íbúa í Rússlandi sýna að þegar kemur að trausti og einingu hans eigin þjóðar kann hann þegar að hafa tapað. Utan stríðs Rússa var fátt til að hugga sig við árið 2022. Í júní sneri Hæstiréttur Bandaríkjanna við úrskurðinum í máli Roe gegn Wade með þeim afleiðingum að rétturinn til fóstur- eyðinga er ekki lengur stjórnarskrárvarinn í Bandaríkjunum; í ágúst ollu flóð hörmungum í mörg hundruð þorpum í Pakistan, 1.500 manns létu lífið og líf 33 milljóna manna fór úr skorðum; í september lést síðan Elísabet II. drottning, sem hafði verið kjölfesta bresku konungsfjölskyldunnar og laus við uppnám og uppákomur ólíkt öðrum í fjölskyldunni um leið og pundið féll í sögulegar lægðir gagnvart bandaríkjadollar. Þegar leið að lokum ársins hækkuðu seðlabankar um allan heim vexti til að hemja verðbólgu og vöruðu við því að samdráttur væri líklegast í vændum um allan heim. Nú er árið 2023 komið með okkur í sigtið. Í vændum er allt frá því að stærsti vindmyllugarður heims verði tekinn í notkun í Japan til 100 ára afmæla Walt Disney-fyrirtækisins og Warner Brothers og hátíðar til að hylla hundinn í Nepal. Hér á eftir fylgja dæmi um þrautseigju og útsjónarsemi í verki. JANÚAR KRÓATÍA, 1. JANÚAR: Tæpum áratug eftir inngönguna í Evrópusambandið ætla Króatar að taka upp evru og verða hluti af Schengen-svæðinu. Króatar ætla ekki að láta yfirvofandi samdrátt á evrusvæðinu stöðva sig og vonast til að upptaka myntarinnar og innganga í Schengen-svæðið, sem opnar fyrir ferðalög án áritunar, verði til þess að laða ferðamenn í auknum mæli að strandlífinu við Adríahafið. ÍTALÍA, 16. JANÚAR: Í Feneyjum verður byrjað að innheimta gjald af ferðamönnum, sem koma aðeins til borgar- innar til að dvelja í nokkra klukkutíma, en gista ekki yfir nótt. Embættismenn borgarinnar hafa verið að undirbúa innleiðingu gjaldsins, sem á að takmarka fjölda skammtímatúrista, sem valda miklu álagi á viðkvæma innviði borgarinnar. Gjaldið verð- ur allt frá þremur til tíu evra á dag og veltur upphæðin á því hvað mannmargt er í borginni þann daginn. BANDARÍKIN, 23. JANÚAR OG 4. APRÍL: Tveir risar í Hollywood verða 100 ára. Það eru auðvitað Warner Brothers og Disney! Kvikmyndaverin hafa bæði í hyggju að mikið verði um dýrðir á öllum vígstöðvum, allt frá skemmtigörðum þeirra til tölvuleikja, sjónvarpsstöðva og streymisþjónusta út árið. MASHA GONCHAROVA Er verið að skipuleggja komandi ár? Hér eru nokkrir eftirtektarverðir viðburðir. Atburðir sem munu skekja eða stjaka létt við heiminum 2023
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.