Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 70
70 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 TÍMAMÓT VÍTT OG BREITT UM VERÖLDINA Sirja Majaluoto/Oulu August Festival Forfallnir áhugamenn um loftgítar munu sleppa fram af sér beislinu í Oulu í Finnlandi í ágúst. Febrúar ÁSTRALÍA, 17. FEBRÚAR TIL 5. MARS: Grípið regn- bogafánann og skjótið tappanum úr kampavínsflöskunni: WorldPride er á leið til Sydney. Búist er við hálfri milljón manna á gleðihátíðina, sem mun standa í 17 daga. Ekki finnst þó öllum þeim sem eru í hinsegin samfélaginu að þeir séu aufúsugestir. Sumir athugasemdaglaðir hafa sagt að gleðidagarnir séu fyrir elítuna og vísa þar til miðaverðsins. Aðgangur að þriggja daga mannréttindaráðstefnu kostar til dæmis 215 þúsund krónur og ódýrustu miðar á partíið á Bondi-ströndinni kosta 25 þúsund krónur. BANDARÍKIN 12. FEBRÚAR: Næstum fimm árum eftir að hún kom síðast fram á Grammy-verðlaunahátíðinni 2018 snýr Rihanna – sem réð lögum og lofum frá fyrsta áratug aldarinnar þar til síðasta platan hennar, Anti, kom út 2016 – aftur á sviðið til að taka þátt í þeim tónlistarviðburði sem hvað mest er horft á í heiminum. Hér er um að ræða hálfleik í ofurskálinni, úr- slitaleiknum í bandaríska fótboltanum eða ruðningi. Hér þykir fyrirtækið Apple Music, sem tekur nú við af Pepsi sem helsti bakhjarl hálfleiksuppákomunnar, aldeilis hafa slegið sér upp. Mars BANDARÍKIN, 12. MARS: Klukkum verður flýtt um eina klukkustund í Bandaríkjunum og verður það kannski í síðasta skipti. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í mars á þessu ári lög, sem kennd eru við sólarvörn, og hefðu í för með sér að árstíðabundnar breytingar á klukkunni yrðu úr sögunni. Marco A. Rubio, repúblikani frá Flórída, var meðal stuðningsmanna laganna. Hann sagði að við þessa breytingu myndi draga úr árekstrum í umferðinni og slysum, ránum myndi fækka um 27 af hundraði og orkunotkun minnka. Apríl FRAKKLAND, SPÁNN OG BANDARÍKIN, 8. APRÍL: Í tilefni af því að 50 ár verða liðin frá andláti listamannsins Pablos Picassos munu söfn um allan heim taka þátt í viðburði sem nefnist „Hyllum Picasso 1973-2023“. Skipuleggjendur eru Museé National Picasso í París og Bernard Ruiz-Picasso, barnabarn listamannsins. Meðal sýninga af þessu tilefni verða „Picasso 1969-72: Endir upphafsins“ í Picasso-safninu í Antibes (8. apríl til 25. júní), „Picasso hinn ungi í París“ í Guggenheim-safninu í New York (12. maí til 7. ágúst) og „Picasso gegn Velasquez“ í Casa de Velasquez í Madríd (september til nóvember). Maí BRETLAND, 6. MAÍ: Karl III., sem eitt sinn lýsti því að eiga fyrir höndum að verða kóngur sem „hræðilega óvæginni“ lífsreynslu, verður krýndur í athöfn í Westminster Abbey. Buck- ingham-höll hefur gefið til kynna að krýningin muni verða stutt – rúmur klukkutími – og látlausari en krýning móður hans sem stóð í næstum þrjár klukkustundir að viðstöddum átta þúsund hefðarmönnum. Júní EGYPTALAND, 30. JÚNÍ: Áætluð lok fyrsta þáttarins í að reisa nýja stjórnsýsluhöfuðborg Egyptalands. Helstu stjórnar- stofnanir landsins verða þar til húsa austur af Kaíró. Fram- kvæmdin á að kosta 30 milljarða dollara. Þarna eiga að vera störf og híbýli fyrir íbúa Kaíró sem er að sprengja allt utan af sér vegna mannmergðar auk þess að vera vettvangur metn- aðarfullra áætlana á borð við ólympíuþorpið, sem yrði næst- stærsta íþróttasvæði í Afríku og hluti af umsókn Egyptalands um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2036. Júlí LITHÁEN, 11. TIL 12. JÚLÍ: Atlantshafsbandalagið heldur leiðtogafund aðildarríkjanna 30 í Vilnius, sem er aðeins 220 km frá landamærum Rússlands. Þetta verður einn umfangsmesti leiðtogafundur sem haldinn hefur verið í Eystrasaltsríkinu og mun kosta um 30 milljónir evra (4,5 milljarða króna). JAMAÍKA, 24. TIL 28. JÚLÍ: Alþjóðahafsbotnsstofnunin mun gefa út alþjóðlegar reglur um djúpsjávarnámagröft. Þetta er ört vaxandi grein og snýst meðal annars um að nema nikkel, sem er mikilvægt í smíði rafgeyma, sem notaðir eru í mörgum rafbílum. Samtök Kyrrahafsríkja, vísindamanna og samtaka á borð við Greenpeace hafa sakað Alþjóðahafsbotnsstofnunina um að semja reglurnar í of miklum flýti og vilja að bann verði sett á greinina með þeim rökum að þessi námagröftur muni eyðileggja einhver viðkvæmustu vistkerfi heims. Ágúst HEIMURINN: Fjórir dómarar á vegum Airbnb munu velja 100 sérviskulegustu heimilishugmyndirnar úr víðri veröld. Bakhjarl þessa leiks er OMG!-sjóður Airbnb. Í keppninni verða 100 manns valdir og munu fá 100 þúsund dollara hver til að hanna „sturlaðasta stað á jörðu“. Nokkrir hafa verið valdir úr nú þegar, þar á meðal kartöfluhótel í Idaho og útilegurúta í Portúgal, sem hönnuð er í anda sjöunda áratugarins. FINNLAND, 23. TIL 25. ÁGÚST:Meistarar í keppni í loftgítarleik – gítarleik án gítars – hér og þar um heiminn munu safnast saman í Oulu til að keppa um heimsmeistaratitilinn í loftgítarleik. Keppnin hefur verið haldin síðan 1966 og í fyrra komu rúmlega 3.500 áhorfendur. Eru fleiri heimsmeistaramót haldin í Finnlandi? Takk fyrir að spyrja. Finnar halda einnig heimsmeistaramótið í mýrarbolta, heimsmeistaramótið í að grýta farsímum og heimsmeistaramótið í að ríða rugguhestum, svo eitthvað sé nefnt. Calla Kessler fyrir The New York Times Ofurstjarnan Rhianna frá Barbados mun stíga á svið í hálfleik á Ofurskálinni 2023. Andrew Testa fyrir The New York Times Karl III. Bretakonungur verður krýndur á árinu. Stefnt er á látlausa athöfn. Mohamed El-Shahed/Agence France-Presse — Getty Images Al-Fattah al-Alim moskan rís yfir nýrri stjórnsýsluhöf- uðborg Egyptalands.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.