Borgfirðingabók - 01.12.2012, Blaðsíða 144
144 Borgfirðingabók 2012
var knattspyrnuleikur, kepptu þar Norðmenn og Íslendingar. Honum
lauk með jafntefli, eitt mark gegn einu, við lánuðum Norðmönnum
markmann, Guðmund Magnússon. Við fórum í vatnið eftir leikinn og
var það volgt, komum heim í skólahúsið kl. 21.30 og fengum kaffi og
mjólk með brauði og tilheyrandi.
Síðan var kvöldvaka, farið í pokahlaup, kefladrátt og æfð ýmis
fangbrögð. Var mikill og góður rómur gerður að þessu, síðan var
farið inn í húsið og sóttir konfektmolar niður á gólf gegnum arma
tveggja manna, æft langstökk án atrennu og náðu þeir Guðmundur
Magnússon og Indriði Indriðason frá Tumastöðum bestum árangri
af körlum og Jenny B. Sigmundsdóttir úr Reykjavík af stúlkunum.
Að þessu loknu fórum við karlar að rifja upp vísur og kvæði, var
Sigurður Blöndal drýgstur við það.
11. ágúst: Vorum að gróðursetja, var það bratt land en gott að eiga
við, var hópnum skipt í tvennt, var eldra fólk í öðrum hópnum, eg var
í hinum yngri.Við vorum með fleiri plöntur og lukum fyrr, fórum í
vatnið, síðan í búðina, svo að borða. eftir matinn fórum við að skoða
okkur um í Rissa, byrjuðum á sögunarmyllu, var hún sett í gang fyrir
okkur, að því búnu ekið í Rissaskóla þar sem Vingsand skólastjóri
sýndi okkur bygginguna og umhverfi, þetta er nýleg bygging, þarna
er talsvert náttúrugripasafn, sérstök handavinnustofa fyrir stúlkur, tré
og járnsmíðastofa svo og tónlistarstofa og stofa sem ætluð er til rit-
vélarkennslu. Þá er kennaraíbúð, eldhús, dagstofa og svefnherbergi
með einu rúmi.. Sundlaug er í byggingunni; 12.5 metra löng 8.5
metra breið, 1.5 metra á dýpt, 90 sentimetrar í grynnri enda. Skólinn
hóf starfsemi 1959, var hugsaður sem barnaskóli í gömlum stíl en
var gerður að níu ára skyldunámsskóla, fjögurra og fimm ára börn
fengu fimm daga kennslu í viku, sjö, átta, og níu ára sex daga í viku.
Á þessum tíma var þetta eini níu vetra barnaskóli í Þrændalögum.
Skólinn kostaði 4.5 milljónir norskra króna.
Arkitektarnir urðu að breyta teikningum eftir að byrjað var, sem
dæmi íþróttasvæði var áætlað á 105000 kr. Þegar búið var að vinna
fyrir 90000 kr. fundu þeir það út að öll ræsing væri ónýt og þyrfti
að ræsa allt aftur, vegna þess að frárennslisæð lá undir völlinn og
gerði allt vitlaust og kostaði það að lokum 135000 kr. Ríkið hefur
veitt um níuhundruð þúsund krónur í bygginguna. Kennaralaun og
akstur á börnum er greiddur af ríkinu. Fylkið rekur lýðháskóla sem