Borgfirðingabók - 01.12.2012, Síða 221
221Borgfirðingabók 2012
Góðan gest bar að garði sumarið 2011, en þá kom Bjarte Aarseth
tvisvar í Reykholt, í byrjun júlí og lok ágúst. Bjarte, sem er aðal tré-
skurðarmeistari norska þjóðminjasafnsins, vann við útskurð á vígás-
um sýningarinnar um Snorra. Bjarte skar út í sýningarrými Snorra-
stofu og bauð fólki að fylgjast með, eins og hann er vanur að gera í
víkingaskipasafninu í Osló. Vakti hann mikla athygli sýningargesta,
sem nutu þess að fylgjast með miklum meistara í útskurði. Sigríður
Kristinsdóttir hannaði grunnmynd verksins, sem líkist inngangi staf-
kirkna og bæjarhúsa á dögum Snorra, en hugmyndina að gerð þessara
vígása fyrir sýninguna átti Óskar Guðmundsson.
Þótt Snorrastofa komi ekki með beinum hætti að tónlistarstarf-
inu í kirkjunni, þá taka starfsmenn Snorrastofu engu að síður þátt í
starfseminni í krafti samnings Snorrastofu og Reykholtskirkju þar að
lútandi. eins og undanfarin ár er mikið um tónleikahald í kirkjunni,
sem nær hámarki með Reykholtshátíð í lok júlí. dagný emilsdóttir,
móttökustjóri Snorrastofu, hefur yfirumsjón með þjónustu við þessa
starfsemi, en árlega eru að meðaltali um 30 tónleikar í kirkjunni.
Þá er framlag Snorrastofu í sambandi við hina árlegu Reykholtshá-
tíð töluvert mikið, en starfsmenn koma bæði að beinum undirbúningi
og utanumhaldi á meðan á tónleikum stendur, auk þess sem allt
húsnæði Snorrastofu er meira og minna í notkun meðan á hátíðinni
stendur. Reykholtshátíð 2011 var mikill og glæsilegur viðburður, sem
var mjög vel sóttur að vanda. 15 ár voru þá liðin frá upphafi hátíðar-
innar og jafnframt vígslu kirkjunnar í Reykholti. dagana 22. - 24. júlí
var boðið upp á stórkostlega tónlist og frábæra listamenn frá Íslandi,
Noregi, Litháen, englandi og Svíþjóð, en tónleikar hátíðarinnar voru
afar fjölbreyttir. Nýr stjórnandi hátíðarinnar er Auður Hafsteins-
dóttir, fiðluleikari, en hún hefur tekið þátt í hátíðinni frá upphafi.
Verður hún stjórnandi á meðan Steinunn Birna Ragnarsdóttir gegnir
tímabundinni ráðningu sinni við tónlistarhúsið Hörpu.
Vinsælar dagskrár og fyrirlestrar
Snorrastofa stóð fyrir fjölda fyrirlestrakvölda og annarra viðburða
árið 2011, rétt eins og mörg undanfarin ár. Flestir viðburðanna fóru
fram í Hátíðarsal Gamla Héraðsskólans og bókhlöðusal Snorra-
stofu Við val á þátttakendum er haft að leiðarljósi að þeir komi úr
fræðasamfélaginu, en jafnframt er þess gætt að þeir tengist eins og
kostur er jarðvegi héraðsins og geti þannig viðrað verk sín við sitt