Borgfirðingabók - 01.12.2012, Síða 156
156 Borgfirðingabók 2012
og er hún allt öðruvísi en við eigum að venjast heima, úrhelli sem
hellt væri úr fötu en stafalogn. Hér er veðrið í höfuðatriðum það sama
og heima, lognið sem alltaf er hér niðri í dölunum kemur af því að
dalirnir eru svo krappir að rokið nær ekki niður og skógurinn hjálpar
til. Þessi væta er mjög góð fyrir þær plöntur sem við höfum verið að
gróðursetja. Nú fórum við mörg niður í Voga var þar skipt peningum
og verslað. Við vorum saman Guðmundur Magnússon, davíð Péturs-
son frá Grund, Ásta og eg og gengum um bæinn. Við fengum mat
kl. 8 í morgun og nú verður kveðjukaffi kl. 11.15. Við eigum að fara
héðan kl.12 til Otta og taka járnbrautarlest til Oslo þar sem við eigum
að gista. Í Otta var stoppað tæpan klukkutíma, vorum við í annars-
flokks vagni og höfðum 36 sæti samstæð í vagninum. Oft var stansað
með stuttu millibili, þangað til við komum til Hamar, eftir það var
ekki stansað fyrr en í Oslo, farið var frá Otta kl. 14.05 og komið til
Oslo kl.20, farið var í Hersleyskóla til gistingar og síðan í Munchs
Museum til að borða og var það einhver austurlenskur réttur sem
smakkaðist fremur vel. Þegar við fórum frá matstaðnum til gistingar,
ætluðum við að skoða í búðarglugga en þá gerði þá dæmalausustu
rigningarskúr sem eg hefi séð um mina daga, regnið bókstaflega hellt-
ist niður og því fylgdu þrumur og eldingar. Hér sofum við í íþróttasal
og eru látnar undir okkur dýnur fylltar með hálmi, kvenfólkið mun
hafa svipaðan aðbúnað hér uppi. Nú í kvöld um kl. 23 kom hópurinn
frá Rissa og fór á sama stað og við til að borða, en eg var sofnaður,
þegar hann kom.
Við erum nú komin til Osló eða í Víkina hina fornu. Hér stofnaði
Haraldur Sigurðarson harðráði borg árið 1050, hann féll við Öxnaf-
urðu í englandi árið 1066, var þar í bardaga við Aðalráð englakon-
ung, síðan kom Vilhjálmur bastarður frá Normandi og felldi Aðalráð.
einn af liðsmönnum Haraldar harðráða var Þorsteinn Síðuhallsson
og tók hann ekki þátt í flótanum sem á liði Haraldar var. Þegar þeir
sem ráku flóttann komu að honum og spurðu hann hversvegna hann
flýði ekki eins og hinir, svaraði hann, þar sem hann batt skóþveng
sinn. „fyrir því flý eg ekki að eg tek ekki heima í kveld. “ Þeim þótti
þetta drengilega mælt og gáfu honum líf.
19. ágúst: Vaknaði kl. 6.30. Borðuðum í edvard Munch safni, kl. 9 til
11 var farið í verslanir, síðan var okkur sýnt ráðhúsið, hornsteinn þess
var lagður 1931, fyrsti hluti tekinn í notkun 1939, húsið var fullbúið