Borgfirðingabók - 01.12.2012, Qupperneq 149
149Borgfirðingabók 2012
byggingu þessa húss 1860, en englendingurinn varð skammlífur og
dó áður en byggingunni var lokið. Ættin átti býlið til 1914, er sveitar-
félagið notaði sér forkaupsrétt og í stríðinu (1914) var bærinn notaður
sem birgðaskemma fyrir sveitina.1915 hafði fylkið stofnað þennan
skóla, var hann fluttur milli hreppa til 1919, að hann kom hingað
og þá fundu yfirvöld að það var upplagt að nota þetta stóra hús. Var
ákveðið að kaupa húsið, annar staður kom til greina, en stærð hússins
reið baggamuninn. Hér hefur frá upphafi verið húsmæðraskóli og
bændaskóli sjö mánuði og auk þess fimm mánuðir fyrir bændaefni en
nú hefur því verið hætt, en tólf piltar eru teknir yfir sumarmánuðina.
Hér er mikið bóknám, en verklegt nám er einnig mikið. Stúlkurnar
fá einnig kennslu í fjósinu í eina viku. Í búnaðarnáminu er bæði
bóknám og verknám, þeir hafa tvær vikur í skógi að haustinu og til-
sögn á verkstæði. Mér skildist að piltar og stúlkur fengju 60 tíma í
vélavinnu, 40 tíma í búfjárrækt og 40 tíma í garðyrkju. Í þesssum
skóla eru 24 piltar og 24 stúlkur. Barnapróf og átján ára aldur þarf til
inntöku. Aðsókn er mikil að húsmæðraskólanum, en undantekningar
hafa verið gerðar frá búnaðarskólanum, Annar svona skóli er í Hall-
ingdal, ekki aðrir slíkir í landinu, en hér uppi í landinu er verið að
byggja upp líkan skóla og iðnskóla að auki en ekki undir sama þaki.
Nú fengum við lánað straujárn (strokjarn) og Ásta pressaði tvennar
buxur minar og eina skyrtu síðan var talað um íslenskan landbúnað
og pólitík framundir miðnætti.
14. ágúst: Vaknað uppúr kl. 7 og mætt til matar kl.8, síðan farið
að gróðursetja, vorum byrjuð kl. 9.30, kl. 12 var drukkið kaffi og
súrmjólk sem kona landeigandans kom með, einnig brauð sem við
höfðum smurt um morguninn, bragðaðist súrmjólkin sérlega vel, var
þessu öllu gerð góð skil, hitinn var mjög mikill. Ísleifur talaði við
Sigurð Blöndal norðan frá Rissa og var þar eithvað kaldara svo að
hvað veðurfar snerti virðumst við hafa dottið í lukkupott. Í dag var
farið með 2500 plöntur, plöntuðum rúmlega 2000. Í kvöld er okkur
boðið í ferð í smábílum hér um nágrennið, farið var upp á Blu hö (Blá
hæð) sem er 1618 metrar á hæð, og hafa engir Íslendingar komið hér
áður, hér er mikið og fagurt útsýni, en nú er skýjaslæða yfir, enda
ekki að furða í sjálfu sér.
Hér komum við í fyrsta skipti á skóglaust land, síðan við komum
til Noregs og var það léttir. Við skoðuðum sel, þar er ekki föst búseta,