Borgfirðingabók - 01.12.2012, Blaðsíða 157
157Borgfirðingabók 2012
fyrir 900 ára afmæli borgarinnar 1950. Við fengum myndabók af
Ráðhúsinu, en það er erfitt að lýsa byggingunni eða listaverkum þar.
Höfundur að þessu listaverki var Gustav Vigeland 1869 -1943.
Hann átti við mikla fátækt að stríða í æsku og var nærri sultardauður,
nokkrir vinir hans fengu hann til að skrifa borgarstjóra og fá borgina
til að byggja yfir hann og það gerðist um 1920. Var gerður samningur
og urðu listaverk hans eign Oslóborgar. Granitsúla um lífsbaráttuna
og þróunarsögu mannsins, þar sem maðurinn trónir efst, þrír menn
voru þrettán ár að höggva hana til, Þess má geta hér að Vigeland
mótaði einnig styttu Snorra Sturlusonar í Reykholti.
eftir þessa miklu skoðun var okkur boðið til borðhalds á Frog-
nersetrið. Þá fórum við á safn þar sem voru skip frá fornum tíma,
svo og skipið Fram sem Friðþjóf Nansen fór sínar rannsóknarferðir
á og Kontiki-flekinn sem Thor Heyerdal sigldi með seglum yfir
Kyrrahafið. Þarna var skip Ásu drotningar sem sett var í haug milli
800 og 900 og grafið upp 1934, var smíðað sem lystiskip fyrir Ásu
drotningu, hérumbil hvert einast borð upprunalegt, það var kalfagtað
með dádýrshári. Þegar Ása drotning dó var tekin gröf í miðju skipi,
reist grafhýsi þar sem drottningin var grafin með ambátt sinni sem
var drepin, mastrið lagt við hlið grafhýsisins. Síðan hefur allt verið
hulið með smiðjumó, bláleir og yfir allt var gerður mikill haugur úr
greinum, torfi og grjóti. Leirinn hefur varðveitt þetta vel, árarnar eru
upphaflegar, einnig stýrið. Útskurður á stefni er upphaflegur. Vagn
Ásu drotningar, þrír sleðar til að aka á vetrum, hestar og hundar
heygðir utan við skipið, einnig vagn sem talið er að Þór hafi ekið í.
Gaukstaðaskipið er raunverulegt víkingaskip. Það var gafið upp á
sama hátt og drottningarskipið, var seglskip en hægt að róa því með
32 mönnum, fjörutíu manna áhöfn var á þesssu skipi. Á þannig skipi
mun Leifur heppni hafa siglt til Ameríku. Norðmenn smíðuðu sams-
konar skip fyrir heimssýningu í Chicago.
Kontiki er eins og hann var í siglingunni, bundinn saman balsa-
viður og í kjallara hefur verið gert haf og þar getur maður séð hvernig
hann leit út að neðan og þar var karfa sem þeir fóru niður í einu
sinni á sólarhring til að athuga bindingu flekans. Þarna voru hákarlar,
hvalir og fiskar, einnig fuglar suðurhafa. Í húsi í næsta nágrenni er
geymt „Fram“ skip Friðþjófs Nansen, ekki reyndist tími til að skoða
það. Hér hefði þurft að vera vikutíma til að hafa nokkurt gagn af.
Við fórum þarna utan af sýningarsvæðinu heim í skólann þar sem