Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 21
3.1.4 Norskur réttur Í norskum rétti hefur meginreglan um skýrleika refsiheimilda hlotið þó nokkra viðurkenningu í umfjöllun fræðimanna á síðari árum. Úrlausnir í norskri dómaframkvæmd um beitingu meginreglunnar eru hins vegar fáar og hefur refsiheimild t.a.m. enn sem komið er ekki verið vikið til hliðar á þessum grund- velli. Í þriðju útgáfu ritsins Alminnelig strafferett frá 1989 fjallar Johs. Andenæs stuttlega um meginregluna um skýrleika refsiheimilda sem hann telur að eigi stoð í 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar.39 Umfjöllun hans miðast einkum við greiningu á því hvort svokölluð matskennd svigrúmsákvæði40 eða vísireglur samrýmist kröfum um skýrleika samkvæmt 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar, enda sé dómendum með refsiheimildum af því tagi falið óhóflegt mat um hvort háttsemi teljist refsinæm eður ei. Vísar hann í þessu efni til bandarísks og þýsks réttar. Er það niðurstaða hans ekki að sé hægt að útiloka að verknaðarlýsing verði talin svo rúm og óljós að á skorti að hún fullnægi þeirri grundvallarfor- sendu stjórnarskrárinnar norsku að það sé löggjafinn sem ákveða skal hverju sinni hvaða háttsemi telst refsiverð:41 Straffebud af den sidste type harmonerer ikke så godt med den tanke som er kommet til uttrykk í Grl. § 96. Når loven gir anvisning på en vurdering fra domstolenes side, vil det jo i realiteten si at den ikke selv trekker opp en skarp grense mellom straffbart og ikke straffbart, men at den bevisst overlater den nærmere grensedragning til dom- stolen. Den sikkerhet og beregnelighet som prinsippet „nulle poena sine lege“ skulle gi, kan bli illusorisk hvis loven selv gir dommerskjønnet det avgjørende ord. I USA har rettspraksis utformet en lære om at straffebestemmelser som gir borgerne og domstolene altfor liten veiledning om hvor grensen for det straffbare skal trekkes, rett og slett kjennes ugyldige. I Vest-Tyskland er det antatt at forfatningens krav om lovhjemmel for straff (Grunnlovens § 103) stiller krav om en viss bestemthet i gjern- ingsbeskrivelsen. Hos oss var en påstand i denne retning fremme i en kjent porno- grafisak for en del år tilbake, men uten å føre frem (R. 1958, s. 479, se især byrett- ens drøftelse s. 493-494). Men det kan ikke prinsipielt utelukkes at en gjernings- beskrivelse kan være så vid og utflytende at den ikke oppfyller Grunnlovens for- utsetning om at det er lovgiveren som skal avgjøre hva som skal være straffbart. Frá því að tilvitnaður texti í riti Johs. Andenæs kom út hafa norskir fræði- menn að því er virðist fjallað í nokkuð ríkari mæli um meginregluna um skýrleika refsiheimilda og þá út frá 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar og einnig 21 39 Ákvæði 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar er svohljóðandi: „Ingen kan dømmes uden efter lov, eller straffes uden efter Dom. Pinligt Forhør maa ikke finde Sted“. 40 Jónatan Þórmundsson: Afbrot og refsiábyrgð I, bls. 242. Fjallað er um matskennd svigrúms- ákvæði í kafla 3.3.8 í greininni. 41 Johs. Andenæs: Alminnelig strafferett, bls. 113. Sjá hér einnig Johs. Andenæs: Statsforfatn- ingen i Norge. Universitetsforlaget. 8. útg. Osló (1998), bls. 354-355.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.