Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 38

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 38
38 Dómurinn telur að skip ákærða hafi ekki verið fullmannað þegar ákærði lagði úr höfn og hélt því til veiða í umrætt skipti. Broti ákærða er lýst þannig í ákærunni að hann hafi með þessu brotið gegn skipstjóraskyldum sínum og í málflutningi skírskotaði sækjandinn í málinu eindregið til 6. gr. siglingalaga í því sambandi. Í ákærunni er þó ekki vikið að siglingalögunum en dómurinn telur ákærða ekki hafa uppfyllt þá starfs- skyldu sína sem lögð er á hann með 1. mgr. 6. gr. siglingalaga að sjá til þess að skipið væri nægilega mannað. Aftur á móti er ekki almennt refsiákvæði í XV. kafla siglinga- laga, heldur eru þar „casuistiskt“ talin upp þau brot á lögunum sem refsingu varða og er þessi vanræksla ákærða ekki þar á meðal. Verður ákærði því ekki sakfelldur fyrir brot gegn siglingalögum. Samkvæmt 4. gr. laga um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum „skal“ lágmarksfjöldi stýrimanna á skipum sem eru 301 rúmlest og stærri, sem fyrr segir, vera tveir. Þá „skal“ lágmarksfjöldi vélstjóra á skipum með 1801 kw vél og stærri vera þrír, eins og fyrr segir, sbr. 2. gr. laga um atvinnuréttindi vélfræðinga, vél- stjóra og vélavarða, þ.e. yfirvélstjóri, fyrsti vélstjóri og annar vélstjóri. Enda þótt það segi í hvorugum lögunum berum orðum að það sé skylda skipstjóra að gæta þess að þessar fortakslausu kröfur laganna séu uppfylltar að því er varðar stýrimenn og vél- stjóra, verður að telja að það leiði bæði af 1. mgr. 6. gr. siglingalaga og eðli máls að sú skylda hvíli á herðum hans. Hefur ákærði því unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 22. gr. laga um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum og 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Í dómi Hæstaréttar var héraðsdómur staðfestur með eftirfarandi forsendum: Óumdeilt er að 2. stýrimaður og yfirvélstjóri Vigra höfðu ekki gild atvinnuréttindi þegar landhelgisgæslan kom að skipinu að veiðum á Reykjaneshrygg 10. maí 2002. Eins og nánar er lýst í hinum áfrýjaða dómi ber skipstjóri eftir 1. mgr. 6. gr. sigl- ingalaga nr. 34/1985 meðal annars ábyrgð á því að skip hans sé „nægilega mannað.“ Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga nr. 112/1984, sbr. 1. gr. laga nr. 62/1995, ber skipstjóri á íslensku skipi „fulla ábyrgð á framkvæmd laga þeirra og reglna sem lúta að starfi hans og settar eru af þar til bærum stjórnvöldum.“ Nær ábyrgð skipstjóra samkvæmt þessu ákvæði bæði til framkvæmdar laganna sjálfra og annarra laga, sem fjalla um starfsskyldur hans, svo sem laga nr. 113/1984, laga nr. 43/1987 og siglingalaga. Ber skipstjóri þannig eftir b. lið I. 4. gr., 6. gr. og 13. gr. laga nr. 112/1984 með áorðnum breytingum og 2. gr. og 3. gr. laga nr. 113/1984 ábyrgð á því að tilskilinn lögmæltur fjöldi lögskráðra stýrimanna og vélstjóra með gild atvinnuréttindi séu í hverri veiði- ferð. Með þessari athugasemd og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms er á það fallist að refsiheimildir samkvæmt 22. gr. laga nr. 112/1984 og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 113/1984 séu nægilega skýrar og að ákærði hafi unnið sér til refsingar fyrir þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir og eftir þeim lagaákvæðum, sem í ákæru greinir. Verður ákvörðun héraðsdóms um refsingu ákærða og sakar- kostnað staðfest. Í dómi Hæstaréttar 11. mars 2004, nr. 380/2003, (skotveiðar við Hvalfjörð) voru B og S ákærðir fyrir brot á lögum nr. 64/1994 um vernd friðun og veiðar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.