Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 49

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 49
gerð hafi formlega verið sett.97 Hins vegar skal vakin athygli á því að 1. desem- ber 1965 gaf dómsmálaráðuneytið út „leiðbeiningar um meðferð íslenska fán- ans“ nr. 222/1961 sem birtar voru í B-deild Stjórnartíðinda 5. desember 1966. Í 5. og 6. gr. leiðbeininganna er að finna nánari fyrirmæli um meðferð fánans.98 Með vísan til framangreinda sjónarmiða um tengsl almennra og óljósra hátt- ernisreglna í settum lögum og framsalsheimilda til útfærslu slíkra fyrirmæla í stjórnvaldsfyrirmælum er ekki útilokað að fyrirmæli 5. og 6. gr. leiðbeininganna hefðu þýðingu við heildstætt mat á því hvort 1. mgr. 12. gr. laga nr. 34/1944 yrði talin standast skýrleikakröfur 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. 3.3.5 Almennur og hlutlægur mælikvarði en ekki einstaklingsbundinn Ef horft er til forsendna Hæstaréttar í H 1997 1253 (skoteldar), H 2000 280 (hlutlæg refsiábyrgð skipstjóra) og H 3. apríl 2003 (arnarvarp í Miðhúsaeyjum) virðist mega draga þá ályktun að mælikvarði sá á fyrirsjáanleika refsiheimildar, sem lagður er til grundvallar, sé almennur og hlutlægur. Matið er þá miðað við það hvernig ætla megi að refsiheimildin horfi við venjulegum, sakhæfum ein- staklingi fremur en að vera einstaklingsbundin, þ.e. miðað við það hvernig refsiheimildin horfir við hinum ákærða sérstaklega. Að þessu leyti virðist dómaframkvæmdin í samræmi við þau viðhorf sem lýst er í fræðiskrifum Jón- atans Þórmundssonar og byggt hefur verið á í norskum, dönskum og banda- rískum rétti að meginstefnu til. Því má þó líklega halda fram að dómur Hæstaréttar 11. mars 2004, nr. 380/2003, (skotveiðar við Hvalfjörð) kunni að sumu leyti að ganga í gagnstæða átt þótt ekki sé þar beinlínis vísað til krafna um skýrleika refsiheimilda. Þar voru nokkuð fjarlæg tengsl á milli framsalsheimildar um skilgreiningu og 97 Í ákvæði 13. gr. laga nr. 34/1944, fyrir þá breytingu sem gerð var á ákvæðinu með 11. gr. laga nr. 67/1998, sagði: „Dómsmálaráðuneytið getur, ef þörf þykir, sett með reglugerð sérstök ákvæði til skýringar á ákvæðum laga þessara“. Í frumvarpi því er varð að lögum nr. 34/1944 sagði meðal annars um röksemdir að baki reglugerðarheimildinni: „Í lagafrumvarpið hafa verið tekin ýmis ákvæði, sem eru ekki í fánalögum Norðmanna og Svía; eru sum þeirra í konungsúrskurðum eða auglýsingum. Alltaf geta komið fyrir ný atvik, sem geri æskilegt að skýra nánar einhver ákvæði lag- anna eða jafnvel setja ný ákvæði. Hefir því þótt rétt að setja í lögin ákvæði, sem heimili slíkt í öðru en lagaformi“, sjá Alþt. 1941, A-deild, bls. 159. Með 11. gr. laga nr. 67/1998 var reglugerðarheim- ildin færð til forsætisráðuneytisins og gerðar á henni orðalagsbreytingar. Af frumvarpi því er varð að lögum nr. 67/1988 og meðferð þess á Alþingi má ráða að ætlunin með umræddri reglugerðar- heimild 11. gr. laganna, sbr. 13. gr. laga nr. 34/1944, hafi fyrst og fremst verið sú að fela forsætis- ráðherra að útfæra nánar fyrirmæli um notkun og meðferð þjóðfánans, sjá Alþt. 1997-1998, A- deild, bls. 3788. Þá er einkar athyglisvert að með frumvarpinu fylgdi „[tillaga] að reglugerð um notkun og meðferð þjóðfána Íslendinga“, þar sem er m.a. að finna ítarleg fyrirmæli um „reglur fánanum til verndar“ og um ýmsa „meðferð fánans“ og skýringar við einstakar greinar. 98 Enda þótt núgildandi 13. gr. laga nr. 34/1944, sbr. 11. gr. laga nr. 67/1998, geri ráð fyrir að for- sætisráðuneytið setji reglugerð með sérstökum ákvæðum til nánari skýringar laganna verður ekki af því einu lagt til grundvallar að leiðbeiningar dómsmálaráðuneytisins frá 1966, sem sætt hafa lög- formlegri birtingu, eigi sér ekki næga stoð í lögunum eftir gildistöku laga nr. 67/1998, sbr. einnig gagnályktun frá ákvæði til bráðabirgða við lög nr. 67/1998. 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.