Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 90

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 90
Þ ók bifreið sinni austur Suðurlandsveg nálægt Gljúfurárholti í Ölfusi. Skuggsýnt var og loft skýjað. Í sama mund rak bóndinn D hóp 10-11 kinda meðfram veginum til vesturs. Fór hann á undan en vinnumaður hans á eftir. D átti fjárhús beggja vegna vegarins og voru hlið á girðingu báðum megin vegar. Að sögn D voru bæði hliðin skilin eftir opin til að féð rynni þangað sem það sjálft vildi, er að þeim væri komið. Nokkrar kindur tóku sig út úr hópnum og hlupu yfir veginn. D komst síðan fyrir þær og hugðist reka þær til baka, en þá hlupu þær upp á veginn og í veg fyrir bifreið Þ. Tvær drápust og bifreiðin skemmdist. Þ stefndi D til greiðslu bóta og þótti D eiga nokkra sök á óhappinu vegna vanrækslu á að gera ráðstafanir til varna því að féð tæki á rás inn á veginn. Þ var hins vegar ekki talinn hafa sýnt næga aðgát þar sem hann mátti vænta þess að fé væri við veginn á þessum stað og árstíma. D var dæmdur til að greiða Þ 1/3 hluta tjóns hans. H 2001 3203 Ó ók að kvöldlagi upp blindhæð á þjóðvegi. Handan hæðarbrúnarinnar blöstu við henni hross og varð folald í eigu E fyrir bifreiðinni, en S og E höfðu rekið hrossin eftir þjóðveginum þetta kvöld. Í máli sem var höfðað á hendur H, S og E til greiðslu á tjóni, sem varð á bifreiðinni, héldu þeir því fram að hrossin hefðu verið í lausa- göngu, en þau hefðu sjálf farið af stað úr haga þar sem þau hefðu verið skilin eftir meðan hlé var gert á rekstrinum. Hæstiréttur taldi að H, S og E bæru sönnunarbyrð- ina fyrir þessari staðhæfingu sinni og að þeim hefði ekki tekist sú sönnunarfærsla. Samkvæmt 2. mgr. 78. gr. umferðarlaga hefði heimild til að reka hrossin eftir þjóð- veginum verið háð því að nægilega margir gæslumenn fylgdu rekstrinum og að einn gæslumaður færi fyrir, enda hefði mátt vænta umferðar ökutækja um veginn. Að hvorugu þessu hefði verið gætt við rekstur hrossanna. Ó var ekki talin hafa sýnt af sér gáleysi og voru H, S og E dæmdir óskipt til að greiða tjónið á bifreiðinni. Dómarnir í H 1985 1240 og H 2001 3203 eru mjög skýrir varðandi túlkun á framangreindu ákvæði umferðarlaga um rekstur búfjár. Af þeim verður t.d. dregin sú ályktun að rekstrarmönnum beri alltaf að láta mann fara fyrir rekstr- inum ef minnsti möguleiki er á umferð ökutækja um veginn. Þá má og vera ljóst að sönnunarbyrðin varðandi það hvort um sé að ræða rekstur eða lausagöngu hvílir rekstrarmönnunum, sbr. síðari dóminn. Af honum má draga þá ályktun að áning breyti ekki rekstri í lausagöngu. Í áningarstað gilda fyrirmæli umferðar- laga um rekstur og verður t.d. að sjá um að búfé sé vikið af vegi vegna umferðar ökutækja. Það væri þó hægt að hugsa sér að rekstri lyki áður en komið væri í áfangastað og við tæki lausaganga, eins og þar sem hlé væri gert yfir nótt á svæði þar sem lausaganga búfjár væri leyfð og það sett á beit. Því væri síðan smalað saman að morgni og reksturinn héldi áfram. Þá eiga rekstrarmenn að vera nægilega margir miðað við fjöldann sem rekinn er, hvaða búfé er rekið og á hvaða árstíma. Það verður þannig að gera ráð fyrir fleiri rekstrarmönnum 90
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.