Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 117
Vísaði fundarstjóri til greinargerðar með tillögunni og gaf því næst orðið
laust. Gunnar Jónsson tók til máls og skýrði frekar inntak greinargerðarinnar.
Var tillagan því næst borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Að lokinni
atkvæðagreiðslu frestaði fundarstjóri fundi vegna framkominnar beiðni Félags
kvenna í lögmennsku um inngöngu í félagsdeild.
8. Framhaldsaðalfundur félagsdeildar LMFÍ
Framhaldsaðalfundur félagsdeildar LMFÍ var haldinn 28. apríl 2005. Á dag-
skrá fundarins var aðeins eitt mál, en það var eftirfarandi umsókn Félags kvenna
í lögmennsku að félagsdeild LMFÍ skv. 3. gr. reglna um félagsdeild LMFÍ:
Með vísan til fyrirliggjandi tillögu um breytingu á 3. gr. reglna um félagsdeild LMFÍ
sækir Félag kvenna í lögmennsku um aðild að félagsdeild, verði samþykkt á aðal-
fundi félagsdeildar þann 26. mars nk. að aðild að félagsdeildinni geti einnig átt sér-
greinafélög og hagsmunafélög þeirra einstaklinga sem uppfylla aðildarskilyrði að
öðru leyti.
Gunnar Jónsson hrl., sem kjörinn hafði verið fundarstjóri, gaf orðið laust um
umsóknina og kvaddi Jónas Haraldsson hrl. sér hljóðs. Óskaði hann eftir
upplýsingum um það hver væri tilgangurinn með þeim breytingum sem gerðar
hefðu verið á reglum félagsdeildar. Jafnframt lagði hann fram þá spurningu
hvort konur í lögmannastétt hefðu verið beittar misrétti innan félagsdeildar-
innar. Benti Jónas á að félagsdeildin hefði á sínum tíma verið stofnuð fyrir lög-
menn sem einstaklinga, en með gerðum breytingunum væri horfið frá því og
opnað fyrir sérhagsmunagæslu þrýstihópa á kostnað einstaklinga. Starfsemi
slíkra sérhópa innan félagsdeildarinnar væri ógnun við starf hennar þar sem
slíkir hópar gætu nánast yfirtekið starfsemina. Lagði Jónas til að heimild 3. gr.
reglna um félagsdeild yrði ekki notuð.
Gunnar Jónsson hrl. gerði grein fyrir því að heimild til að veita Félagi
kvenna í lögmennsku aðild væri fyrir hendi með þeim breytingum sem gerðar
hefðu verið á aðalfundi félagsdeildar. Benti Gunnar á að gagnkvæmur styrkur
yrði af inngöngu Félags kvenna í lögmennsku í félagsdeild, enda hefði félags-
deildin sem slík aldrei náð þeim styrk sem lagt hefði verið af stað með í upp-
hafi. Hafi stjórn félagsins verið einhuga um að styðja breytingar á reglum
félagsdeildar og tillaga þess efnis hlotið brautargengi á aðalfundi.
Sif Konráðsdóttir hrl., formaður Félags kvenna í lögmennsku, tók til máls og
gerði grein fyrir tilgangi félagsins. Benti hún á að félagið væri ekki þrýstihópur
og væri ekki tilkomið vegna þess að konur hefðu verið beittar misrétti. Hug-
myndin að breytingum á reglum félagsdeildarinnar væri heldur ekki bundin við
Félag kvenna í lögmennsku, heldur væri verið verið að opna aðgang ýmissa
starfandi áhugafélaga á mismunandi réttarsviðum, sem styrkt gætu starfsemi
félagsdeildarinnar. Nýta mætti þá aðstöðu sem fyrir hendi væri og tengjast betur
þeirri vinnu sem fram færi á skrifstofu félagsins. Þá yrði ekki um kostnaðarauka
117