Fréttablaðið - 25.02.2023, Side 35
Viltu taka þátt í að breyta
mannvirkjagerð til framtíðar?
Laus störf hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
HMS leggur áherslu á að efla rannsóknarumhverfi og nýsköpun byggingariðnaðarins,
stafrænar lausnir í eftirliti og vistvæna mannvirkjagerð.
Svið mannvirkja og sjálfbærni er nýtt, öflugt svið innan HMS sem vill stuðla að auknum gæðum
og sjálfbærni innan mannvirkjageirans með rekjanleika og fræðslu. Við vinnum í spennandi
starfsumhverfi til að hafa jákvæð áhrif á mannvirkjageirann og samfélagið okkar.
hms.isBorgartúni 21, 105 Reykjavík - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki - Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar 2023
Sjá nánari upplýsingar um störfin og kröfur um þekkingu og hæfni á hagvangur.is eða starfatorg.is
Sótt er um á hagvangur.is
Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni, thora.thorgeirsdottir@hms.is
Við leitum að skapandi einstaklingi sem er m.a.
með menntun eða starfsreynslu sem nýtist í starfi,
svo sem á sviði félagssálfræði, menntavísinda eða
breytingastjórnunar.
Meðal verkefna er öflugt samtal og samstarf við
menntastofnanir, fagfélög, fagaðila og aðra hagaðila
m.a. um fræðsluþörf innan mannvirkjageirans og
hvernig hægt sé að mæta henni með fjölbreyttum og
markvissum hætti.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er m.a.
með háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar og
reynslu við mannvirkjahönnun eða -framkvæmdir.
Meðal verkefna er að móta lausnir til að safna
upplýsingum um helstu byggingargalla og koma á fót
forvarnarstarfi í þeim efnum. Einnig að efla og stýra
útgáfu Rb-blaða.
Styðja við bætta notkun og meðferð
byggingarvara Vinna að einföldun regluverks
Efla fræðslu og þekkingarnet
innan iðnaðarins
Ná yfirsýn yfir byggingargalla og stuðla að
rannsóknum til að draga úr þeim
Við leitum að kröftugum einstaklingi sem er m.a. með
háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynslu við
mannvirkjahönnun eða -framkvæmdir.
Meðal verkefna er markaðseftirlit með byggingarvörum,
fræðsla, fjölbreytt samskipti við hagaðila, aðkoma að
endurskoðun regluverks og erlent samstarf.
Við leitum bæði að lögfræðingi og sérfræðingi sem er
m.a. með háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar.
Meðal verkefna þeirra er fjölbreytt og lifandi vinna
við þróun regluverks og gerð leiðbeininga á sviði
mannvirkjagerðar í samstarfi við ólíka hagaðila.
Við ætlum að: