Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 64

Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 64
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN & DREIFING Torg ehf. 2022 - 2025 Óttars Guðmundssonar BAKÞANKAR | Sparaðu tímann og gerðu einfaldari innkaup á netto.is Nýlega bárust fréttir frá Noregi að frægt málverk af Leifi Eiríks- syni, landkönnuði og sjóhetju, hefði verið tekið niður af veggjum Listasafnsins í Osló. Myndin þótti rasísk og ýta undir þjóðernishyggju Norðmanna. Íslendingar munu væntanlega fylgja þessu fordæmi eftir og taka niður styttuna af Leifi á Skólavörðuholti í nafni mann- úðar og fjölmenningar. Styttan af Þorfinni karlsefni við Laugarásbíó fer vonandi sömu leið í brotajárn. Eiginkona hans Guðríður Þor- bjarnardóttir var þekktur rasisti sem sagðist hafa eignast fyrsta hvíta barnið í Ameríku. Þetta eru þó ekki einu dæmin um pólitíska ranghugsun Íslend- ingasagna. Ingólfur Arnarson og Hjörleifur félagi hans voru þræla- haldarar og ofbeldismenn. Erlendir farandverkamenn mótmæltu töxtum og aðbúnaði láglauna- fólks og urðu Hjörleifi að bana í verkfallsaðgerðum. Ingólfur drap á móti alla verkfallsmenn úti í Vest- mannaeyjum. Þetta er góð ástæða til að fella styttuna af Ingólfi á Arnarhóli og breyta Ingólfsstræti í Dufþakursgötu í höfuðið á foringja verkamanna. Egill afi minn drap húskarla sína eftir að þeir höfðu hjálpað honum að fela silfrið. Nú verður að að eyðileggja styttuna Sonartorrek að Borg á Mýrum. Þrælarnir Kolbakur í Fóstbræðra- sögu og Melkólfur í Njálu voru báðir misnotaðir kynferðislega af kvenhetjum sagnanna. Gunnar á Hlíðarenda beitti heimilisofbeldi þó að það væri ekki illa meint. Sögurnar skal endurrita í takt við tíðarandann. Margir okkar bestu rithöfunda og sjónvarpsmanna eru sómamenn sem stunda pólitíska rétthugsun. Þeir geta skrifað nýja Brennu-Njálssögu, geislandi af manngæsku og fjölbreyttum mannræktarsjónarmiðum. n Ný söguskoðun Nýtt HÄGGMISPEL veggskreyting 2.790,-/stk. © Inter IKEA System s B.V. 2023 Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is SVARTKLINT sængurverasett B150�L200 cm 3.990,- VIKHAMMER náttborð 11.950,- LUKTJASMIN sængurverasett B150�L200 cm 6.690,- Bless hversdagsleiki ̵ halló nýir litir N Ó I S Í R Í U S

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.