Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 13
Þar kom sannarlega við sögu Skúli Egg- ert Þórðar- son, sá hinn sami og nú hefur samið einhvers konar hvít- þvottar- skýrslu fyrir Bjarna Benedikts- son um Lindar- hvols- málið. Eftir áralangt þóf og sérhagsmuna- gæslu íslenskra stjórnmálaflokka tókst loksins árið 2006 að setja ný lög um aukið gegnsæi og heilbrigð- ari fjárreiður þeirra. Ísland var þá orðið heldur vandræðaleg eftirlegu- kind í allri Evrópu í þeim efnum. Við þetta tækifæri lýsti Geir H. Haarde, þáverandi formaður Sjálf- stæðisf lokksins og forsætisráð- herra, ánægju sinni með árangurinn á blaðamannafundi síðla árs 2006. Spurður sérstaklega um fjármál Sjálfstæðisf lokksins sagði hann harla hróðugur: „Við höfum ekki neitt að fela í þessu og höfum aldrei haft.“ Eftir hrunið 2008 birtust m.a. gögn um framlög til stjórnmála- f lokkanna, líka þeirra sem höfðu ekkert að fela. Í ljós kom að FL- Group og Landsbankinn höfðu sam- anlagt rennt 55 milljónum króna inn í sjóði Sjálfstæðisflokksins. Af þessu varð mikið fár og hneyksli, svo mjög að nýkjörinn ungur for- maður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, lofaði að skila pen- ingunum aftur. Með loforði sínu viðurkenndi Bjarni að umrædd framlög til f lokksins væru „skítug“ eða mútur eins og það heitir á mannamáli. Og ekki vildi Sjálfstæðisf lokkurinn vera mútuþægur. Árin liðu og 2022 var Bjarni Bene- diktsson í nauðvörn, þá orðinn fjár- málaráðherra að eilífu og valdamesti maður landsins. Hann þurfti að verj- ast óvinum sem sökuðu hann um að selja föður sínum, vinum og inn- herjum hluti ríkisins í Íslandsbanka. Nú síðast heldur umboðsmaður Alþingis áfram að kvelja Bjarna með nærgöngulum spurningum um hæfi hans til að koma nálægt kaupum föður síns á hlutum í Íslandsbanka. Ríkisendurskoðanda hafði „sést yfir“ að nefna þetta atriði í skýrslunni sem Bjarni bað sjálfur um. Kannski var þessum „óvinum“ vorkunn. Nafn Bjarna hafði verið bendlað við vafasöm hrunmál, nafn hans hafði fundist í gögnum um aflandsfélög, hann hafði komið rökstuddum grun um brot á sótt- varnalögum af sjálfum sér yfir á lög- regluna og að minnsta kosti tveimur skýrslum hafði hann að vísvitandi stungið undir stól fram yfir þing- kosningar 2016 þar eð þær hefðu komið honum og Flokknum illa hefðu þær birst í miðri kosningabar- áttu. Vítin voru til að varast þau, því þá þegar var einn forsætisráðherra fokinn vegna Panamaskjalanna: Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson. Hvaða skýrslur? Önnur var um aflandseignir Íslendinga og mögu- leg skattsvik og hin um skiptingu „Leiðréttingarinnar“ svonefndu. Báðar voru tilbúnar í fjármálaráðu- neyti Bjarna Benediktssonar fyrir þingkosningarnar 2016 en ekki birt- ar fyrr en að þeim loknum. Skýrslan um leiðréttinguna leiddi í ljós að ríkari hluti þjóðarinnar fékk 52 af 72 milljörðum króna sem úthlutað var. Fengu sem ekki þurftu. Og nú er það Lindarhvoll Í kring um Sjálfstæðisflokkinn og fjármálaráðherra hans að eilífu hringsnúast embættismenn sem greiða f lokknum og ráðherranum leið og hjálpa til við að stýra þeim frá skerjum og tundurduflum póli- tískra andstæðinga. Margir hafa þeir fengið há embætti sem vinargreiða eða fylgdarlaun stjórnmálamanna sem fá lyklavöldin að ríkissjóði. Þeir geta hæglega verið háttsettir í ráðuneytum, innan dómskerfisins, forstjórar opinberra stofnana, jafn- vel stofnana sem heyra hvorki undir framkvæmdavaldið né fjármálaráð- herrann, heldur Alþingi og þar með almenna kjósendur. Fimi þeirra við að birta sérhagsmuni ráðherra sem almannahagsmuni er óvéfengjan- leg. Bjarni hefur beitt valdi sínu til að hundsa Alþingi og fengið að ráða því að ríkisendurskoðandi rann- sakaði Íslandsbankasölu og Lindar- hvolsmál, dularfulla sölu almenn- ingseigna. Og fengið þaðan m.a. skýrslu Skúla Eggerts Þórðarsonar í embætti ríkisendurskoðanda. Hver er Skúli Eggert? Þegar húsleit var gerð hjá skattrannsóknarstjóra (Já, þetta gerðist í alvörunni!) Snemma í febrúar 2008 féllst Hæsti- réttur á kröfu Helga Magnúsar Gunnarssonar, þá saksóknara efna- hagsbrota, um að heimiluð yrði hús- leit hjá embætti skattrannsóknar- stjóra í því skyni að leggja hald á gögn vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum Óskars Magnús- sonar. Óskar er innvígður og inn- múraður Sjálfstæðismaður, gerðist síðar útgáfustjóri Árvakurs (Morg- unblaðsins) og réði Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra Sjálf- stæðisflokksins, sem ritstjóra. Meint skattalagabrot Óskars voru rakin aftur til þess tíma þegar hann var stjórnarformaður Baugs um og fyrir síðustu aldamót, en á þeim tíma réðu þar ríkjum helstu óvinir Davíðs. Aldrei hafði það áður gerst að saksóknari efnahagsbrota fengi heimild til húsleitar hjá embætti skattrannsóknarstjóra. Hvergi í heiminum! Ágreiningur hafði risið þegar árið 2006 um það hvort skattayfirvöld gættu jafnræðis í sambærilegum málum. Skúli Eggert Þórðarson, þáverandi skattrannsóknarstjóri, hafði kært Jón Ásgeir og Kristínu Jóhannesarbörn, Tryggva Jónsson og Stefán Hilmar Hilmarsson til ríkislögreglustjóra vegna meintra skattabrota í nóvember 2004. Ekki kærði hann Óskar Magnússon, Flokksgæðing, þrátt fyrir nákvæm- lega sömu meintu brot. Alls snérist málið um 270 milljónir króna sem runnu úr sjóðum Baugs í Luxem- borg til umræddra einstaklinga, þar af yfir 100 milljónir í vasa Óskars. Hlutdrægni og geðþótti Réttu ári áður en saksóknari efna- hagsbrota fékk húsleitarheimild hjá skattrannsóknarstjóra sendi hann frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kom að skattrannsóknar- stjóri hefði kært Jón Ásgeir, forstjóra Baugs, til ríkislögreglustjóra vegna grunsemda um að hafa vantalið 85 milljónir króna tekjur. Hins vegar vísaði skattrannsóknarstjóri sam- bærilegu máli Óskars til yfirskatta- nefndar en hann var grunaður um að hafa vantalið 94 milljónir króna í laun og launatengdar greiðslur auk á þriðja tug milljóna króna sem greiddar höfðu verið einkahluta- félagi hans. Hafi hvorugur þeirra talið greiðslurnar fram til skatts með fullnægjandi hætti hlutu brot þeirra að vera fyllilega sambærileg. Málsmeðferðin var sem sagt gerólík. Mál Óskars fór fyrir yfir- skattanefnd. Flokksgæðingurinn lifði í refsileysi ofar lögunum. Á sama tíma gat Jón Ásgeir átt von fangelsisvist ef niðurstaða málsins yrði honum mótdræg. Jón Ásgeir og Óskar fengu með öðrum orðum afar mismunandi meðferð, að ekki sé sagt geðþóttalega, vegna ætlaðra brota. Þar kom sannarlega við sögu Skúli Eggert Þórðarson, sá hinn sami og nú hefur samið einhvers konar hvítþvottarskýrslu fyrir Bjarna Benediktsson um Lindar- hvolsmálið. Og það í embætti ríkis- endurskoðanda, sem heyrir undir Alþingi en ekki Flokkinn. Silkihanskameðferð fyrir flokksmenn Helgi Magnús, saksóknari efnahags- brota, undi ekki þessari mismunun í meðferð sambærilegra mála en fékk ekki umbeðnar upplýsingar hjá skattrannsóknarstjóra. Og aflaði sér húsleitarheimildar hjá embættinu. Þegar húsleit var loks heimiluð hjá skattrannsóknastjóra var Skúli Eggert orðinn ríkisskattstjóri (skip- aður af Árna Mathiesen, Sjálfstæðis- flokki). Eftirmaðurinn sat í súpunni sem Skúli hafði matreitt. Í bréfi Helga Magnúsar til ríkis- saksóknara sagði orðrétt: „Með skattayfirvöld og sérstaklega skatt- rannsóknarstjóra ríkisins sem eftirlitsaðila með framkvæmd skattalaga í huga lýsi ég því að ég tel eðlilegt og rétt að skattayfirvöld veiti ákæruvaldinu... upplýsingar og viðhlítandi gögn um hvernig til- tekin brot á skattalögum hafi verið afgreidd í skattkerfinu eða hvernig stefnt sé að afgreiðslu þeirra, en ekki einungis um að þau hafi verið afgreidd þar eða verði afgreidd þar.“ Saksóknarinn sagði enn fremur mikilvægt fyrir ákæruvaldið að geta átt þess kost í þágu jafnræðis að geta afstýrt því að mál sem heima eigi í réttarkerfinu (mál Óskars) yrði afgreitt í skattakerfinu. Saksóknarinn, sem vildi kanna hvort jafnræði ríkti í réttarkerfinu, fékk sín gögn með „húsleit hjá skatt- rannsóknarstjóra“! Þar var nálægur Skúli Eggert Þórðarson fyrrverandi ríkisendur- skoðandi, sá hinn sami er skilaði Lindarhvolsskýrslu sem vakið hefur undrun margra og sumir telja hvít- þvottarskýrslu fyrir m.a. Bjarna Benediktsson. En það eru ekki mín orð. En leyndin yfir sérhagsmunagæslunni á vegum flokksins og stjórnkerfisins blómstrar enn. Enginn hefur enn orðið við kröfum um aðskilnað ríkis og Sjálfstæðisflokks. Fróðlegt verður að sjá hvort meiri- hluti þingheims leggst gegn óskum Jóhanns Páls Jóhannssonar (S) um að fá að leggja fram spurningar á Alþingi um Lindarhvolsmálið. Til vara ætti hann að fara fram á húsleitarheimild á skrifstofu forseta Alþingis. Fordæmin, sem auka eiga gagnsæi í þágu almennra borgara, eru til. n Heimild til húsleitar á Alþingi Jóhann Hauksson fv. blaðamaður og stjórnarformaður Transparency International á Íslandi FréttAblAðið skoðun 134. mArs 2023 LAuGARDAGuR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.