Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Qupperneq 10
Á bryggjunni við bústað Sigurliðal970. Verið að
gera klárt. Sveinn Snorrason, Þórunn Guð-
mundsdóttir, Guðmundur Júlíus Ólafsson, Sig-
urliði Kristjánsson (fjœrst).
Forðum daga
Það má segja að nú séu breyttir tímar og
veiðin öðruvísi en þegar ég hóf veiðar
þarna 21 árs 1967. Ég vann þá við útkeyrslu
hjá „Silla og Valda“ sem þá voru voldug-
ustu matvörukaupmenn í Reykjavík.
Komst þar að fyrir tilviljun um haustið ’66,
hljóp í skarðið fyrir mann sem veiktist. Svo
var það vorið eftir, mig minnir 15. júní að
hringt var niður í verslunina í Aðalstræti og
spurt hvort ekki væri einhver af sendlunum
inni. Ég var þá við og var beðinn að fara
upp í Síðumúla til Rafgeyma-Palla og
sækja aukageyma því að það væri allt raf-
magnslaust hjá Sigurliða (Silla) í bústaðn-
um austur í Asgarði en hann átti þá jörð og
auðvitað veiðiréttinn með. Ég fór austur
með nýja geyma, Sigurliði, sem ég þekkti
ekki mikið þá, mætti mér á hlaðinu, horfði
á mig dálítið hissa á svipinn og sagði:
„Hvað, flaugst þú austur?“
Ég vissi náttúrlega hvað klukkan sló og
svaraði:
„Nei, ég kom gegnum Hveragerði.“
Svo var ekkert talað um það meir, ég fór
með geymana niður en ljósavélin vildi ekki
í gang þótt nýju geymarnir væru tengdir við
hana. Ég fór þá að fikta við olíuverkið,
fann skrúfu til að tappa af lofti og endaði
með því að koma vélinni í gang. Eftir það
þótti ég ómissandi í sveitinni. Fljótlega fór
ég að fara austur um hverja helgi en þetta
fyrsta sumar veiddi ég aðallega silung niðri
í Alftavatni. Þangað máttum við alltaf
fara, það var geysigaman, einkum niðri á
Neðstatanga. I ánni var mjög góð bleikja
eins og mér finnst vera að koma aftur upp
síðustu árin, þetta frá eitt og hálft upp í
fjögur pund. En hún var dyntótt og þurfti
oft að beita brögðum til að fá hana til að
taka. Pá var eingöngu veitt á maðk, annað
hvort með flotholti eða sökku. 1 bústaðn-
um voru gamlar bambusstengur sem við
fengum að nota. Ég var þá kominn með
kærustu, Þórunni Guðmundsdóttur, og ár-
ið eftir fæddist okkur sonur, Guðmundur
Júlíus, en við vorum þarna öll og bjuggum í
bústaðnum hjá Sigurliða og Helgu, kon-
unni hans, og fór vel um okkur. Ég hafði
áður aðeins veitt í Leirvogsvatni og svo
hafði ég farið með föður mínum í Leir-
vogsá en við áttum heima á Varmalandi í
Mosfellsdal. Svo hafði maður dorgað í
Suðuránni sem rennur framan við bæinn,
sett girni á hrífuskaftsenda því þarna voru
urriðastubbar. Svo átti ég það til að stelast
út í Norðurá, þar voru oft geysifallegir urr-
iðar í stórum hyljum niðri á Tjaldanes-
bökkum. Fyrsta laxinn í Soginu fékk ég svo
sumarið 1968. Það var í Bátalóni og var
hann sex pund. Ég fór út á Bryggjuna og
10
VEIÐIMAÐURINN