Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Side 15
mig, héldu að ég hefði dottið aftur í ána.
Laxinum landaði ég við gömlu bryggjuna
við bústaðinn hans Sigurliða. Þetta var
seinni hluta ágústmánaðar og aðeins kom-
in haustslikja á búkinn á honum — og
sterkur var hann.
Við Magnús Tómasson, sem síðast vann
hérna í Utilífi en var lengi við pípulagnir og
viðgerðir hjá Silla og Valda og var meistari
að pípulögnum í Glæsibæ,
lentum einu sinni í skemmti-
legri veiði við Neðstatanga.
Það var seint um haust og við
vorum að ganga frá bústað-
num undir veturinn. Þá gafst
okkur tækifæri til að rölta
niður að vatni og gá að fiski.
Þetta var líklega 1974 eða ’75,
alhvít jörð, skreipt í spori og
vont að fóta sig. Við byrjuð-
um ofan við Neðstatanga og
spónninn var varla kominn út
þegar lax tók. Það gengur
þarna fram hraunnef og
bryggja út í og er smávík fyrir
neðan. Ég hafði stundum séð
fiska stökkva ofan við brotið.
Þarna náði ég að mig minnir
sjö fiskum og Magnús fimm.
Stærsti fiskurinn var sautján
pund og þetta voru allt lúsugir, nýgengnir
fiskar. Það var enginn þaralitur á þeim,
þeir voru nýkomnir úr hafi.
Af sem áður var
Þetta var í þá daga og nú er öldin önnur
og ástandið síðastliðið sumar var engu líkt.
Maður trúði því ekki að maður væri austur
við Sog, enga hreyfingu var að sjá og hvergi
fisk að hafa sama hvar maður kom. Það var
eins og allur fiskur væri horfinn — týndur
eða hefði aldrei komið. Steindautt vatn.
Maður leitaði skýringa. Slý hefur aldrei
verið eins mikið og í sumar og fyrrasumar,
hitastig hefur hækkað vegna þess að farið
er að hleypa Kaldárhöfðavatni beint niður
en þá kemur meira yfirborðsvatn úr Þing-
vallavatni og það er hlýrra en botnvatnið
sem fór í gegnum Steingrímsstöð en þetta
er þriðja árið sem vélar hennar eru ekki
keyrðar. Nú er hið eiginlega Sog milli Þing-
vallavatns og Ulfljótsvatns með eðlilegt
rennsli eins og áður var. Getur verið að
fiskur sé meira í slýinu og maður verði
minna var við hann? Ég hef ekki trú á því.
Hins vegar tel ég til bóta að vatnið hlýni.
Slýið var mun meira áður fyrr, fyrir flóðið
mikla þegar stíflan brast við Þingvallavatn
og flóðbylgja með möl og grjót kom niður
ána. Margir töldu að þetta flóð hefði
skemmt veiðistaði. Nei, það er misrennslið
sem er bölvaldurinn, á því tel ég ekki
minnsta vafa.
Það er liðin tíð að koma heim með góð-
an afla. Nú telst gott að koma ekki fisklaus.
GP
Ólafur með hrikaveiði úr Kofastreng í Bíldsfellslandi 15. sept-
ember 1987. Stœrsti laxinn er 21,5 pund og tók Rœkju nr. 6.
Hinir eru 17,15 og 14 pund.
VEIÐIMAÐURINN
15