Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 21

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 21
bringu. Bjarni gaf aftur á móti frá sér þung soghljóð sem voru langt fyrir ofan hættu- mörk og gátu orðið að háhrotum þegar minnst varði. Ég hristi þá báða umsvifa- laust inn í raunveruleikann og sagði þeim í hvíslingum nýjustu fréttir. Fátt vekur meiri spennu og eftirvænt- ingu hjá tófubönum en refur sem stefnir á agnvöllinn sem vakað er yfir. Tófan líður hljóðlaust eins og vofa yfir hjarn og móa líkt og hún snerti ekki jörðina. Oft gerir hún stuttan stans og skimar þá í kringum sig og hnusar út í loftið, því að varfærni og tortryggni eru henni í blóð borin. Ég vildi láta félagana njóta spennunnar að fylgjast með tófunni með mér og hvort hún gæfi færi á sér. Ég tók sjónaukann og beindi honum að þeim stað þar sem ég taldi líklegt að hún mundi birtast. Og þarna kom hún yfir hæðina á hægu brokki. Hún virtist ætla beint í ætið. Brátt varð hún sýnileg berum augum í glampandi tunglsljósinu. Stór, hvítur refur í fallegum vetrarfeldi. Best að vera við öllu búinn. Ég þreif byssuna og renndi hlaupinu hljóðlaust út um skotrauf- ina. Enn var færið of langt. Skyndilega stansaði dýrið og settist á skafl og sat þar drjúga stund. Síðan fór hann af stað aftur og fór nokkrar ferðir fram og til baka í urðinni austur og suður af ætinu. Skolli hafði augun varla af húsinu og í tvígang rak hann upp stutt gagg. Að lokum settist hann enn á skafl, ekki langt frá þeim stað þar sem hann hafði setið áður og góndi heim að húsinu. Að nokkrum tíma liðnum reis hann á fætur og hvarf yfir hæðina í austri. Þessi hegðun refsins hafði heldur betur hleypt fjöri í leikinn og fengið blóðið til að streyma örar. f>að lá við að ég væri farinn að svitna. Að minnsta kosti var allur kulda- hrollur horfinn. Ég þóttist skynja að félög- um mínum væri svipað innanbrjósts. Hvað kom til að dýrið lét ekki blekkjast? Þessari spurningu gátum við ekki svarað. Tófur virðast gæddar fjarskynjun sem að við botnum lítið í. Ég hef borið þetta fyrir- brigði undir tvær grenjaskyttur sem ég tek mark á. Báðir kannast þeir við svona uppá- komur. Taldi annar best að hugsa um allt annað en dýrið sem í sjónmáli væri, en hinn sagði að sér reyndist best að hugsa ein- göngu um kvenfólk þegar þessi staða kæmi upp, það virkaði vel. Það voru liðnar um það bil 20 mínútur frá því að refurinn hvarf þar til að hann birtist aftur. Hann gekk rakleiðis að snjó- göngunum, sem lágu niður að ætinu og hvarf ofan í þau. Ég hafði lagt frá mér byssuna en greip nú til hennar og renndi hlaupinu aftur út um skotraufina. Refur- inn rak hausinn af og til upp úr göngunum til þess að gæta að hvort öllu væri óhætt. Petta gat ég séð í sjónauka haglabyssunn- ar, sem er stór og bjartur. Ég beið eftir því að refurinn kæmi allur upp úr og sýndi breiðsíðuna eins og félagi minn orðar það. Og allt í einu, eftir óratíma að mér fannst, stóð hann á holubarminum. „Láttu fara núna,“ heyrði ég félagana hvísla. Ég seig hægt og rólega með vísifingrinum á gikkinn og bjóst auðvitað við að sjá dýrið falla. Það heyrðist lágvært klikk sem þótt ótrúlegt megi virðast náði eyrum dýrsins, sem þar með hvarf eins og kólfi væri skotið út í myrkrið. Ég hafði eftir allt saman ýtt á aftari gikkinn í stað þess fremri. Ég blótaði sjálfum mér hátt og í hljóði um leið og ég seig niður í stólinn. Þeir Bjarni og Pétur tóku þessum óförum mínum furðu vel og töldu hreint ekki útilokað að þeir gætu sjálfir lent í svipuðum hremmingum. Eftir að hafa fengið okkur hressingu og rætt málin smástund skreið ég í gamla setu- liðssvefnpokann, sem er gott skjól og rúm- ar vel hvern sem er í öllum veiðiklæðum. Mér fannst ég rétt hafa fest blund þegar ég vaknaði skyndilega við skothvell og þegar ég gáði betur að sá ég Bjarna snarast út um VEIÐIMAÐURINN 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.