Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Page 22

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Page 22
lúguna. Hann kom að vörmu spori til baka og kvaðst ekki finna neitt dýr. Feilskot. Það ætlar fleirum að verða á í messunni en mér, hugsaði ég. En nú tók Pétur af skarið. Hann rétti Bjarna vasaljós og sagði honum að leita betur. Hann væri viss um að dýrið hefði fallið. Og viti menn, Bjarni kom til baka haldandi í skottið á slöttungs karlmink, sem fallið hafði ofan í snjógöngin. Reyndar hafði hann haft orð á því þegar hann kom fyrst auga á minkinn að þarna færi mjög smá- vaxin tófa. Bjarni átti eftir að koma meira við sögu. Um það bil klukku- stund seinna banaði hann hvítri tófu sem hætti sér of nálægt æt- inu. Þetta reyndist steggur, nokkuð við aldur en í fallegum vetrarklæðum. Auðvit- að var þessum atburði fagnað í skothúsinu og þá varð þessi vísa til: Hvítur refur kom með hraði. Klónum beitti á hjarn og svell. Pað mun tœpast þykja skaði að þessi hœrulangur féll. Það bjarmaði af nýjum degi í austri þegar ég settist í skotstólinn og bjó mig undir að taka síðustu skotvaktina. Veður hafði breyst nokkuð frá því fyrr um nótt- ina. Vindur var allstífur og blés nú á suð- vestan og fylgdi nokkur skafrenningur. Frost var svipað og áður og hafði þykknað í lofti. En þetta kom ekki svo mjög að sök vegna þess að bjarminn í austri stækkaði jafnt og þétt og gerði þar með allar athug- anir út um skotraufina smám saman auð- veldari. Hrafnarnir voru komnir á stjá. Eg heyrði í þeim af og til. Þeir biðu þess að hafa nægilega birtu við morgunmatinn. Þrátt fyrir mistökin fyrr um nóttina og eins það að nú hafði birt það mikið að skoða mátti umhverfið án hjálpar sjónaukans hélt ég enn í vonina um eina tófu á mann. Og viti menn, um kl. 9.30 fannst mér ég sjá í hnakkann á hvítri tófu í brekkubrúninni suður af húsinu. Þessari sýn brá fyrir rétt sem snöggvast og skömmu seinna kom hrafn og settist á þenn- an sama stað og nálgað- ist síðan ætið með smá- hoppun. Skyndilega flaug hann upp og í sömu andrá birtist hvít- ur refur austur af agn- vellinum og í vindlínu af honum. Nú æstist leikurinn aftur. Eg gaf félögum mínum merki um leið og ég renndi byssunni í skotstöðu. Nú skyldi ekkert klikka. Ég fylgdist með refnum í sjónauka byssunnar. Hann virtist ætla að halda réttri stefnu, en svona rétt til þess að auka spennuna settist hann niður rétt áður en hann var kominn í færi og rak upp hávært gagg, eins og hann teldi að öllu væri óhætt. Síðan skokkaði hann af stað og féll síðan þegar hann átti fáeina metra óf- arna að uppgreftrinum við ætið. Við félag- arnir töldum nú nóg að gert. Spennandi og viðburðarrík nótt var á enda og tími kom- inn til þess að halda heim á leið. Ekki höfðu hagyrðingarnir sagt sitt síðasta orð. A heimleiðinni heyrðist þessi vísa: Norðankæla nóttin skýr, naum því glæta tórði. Skaufhalar voru skotnir þrír. Skaust í burt sáfjórði. Höfundur er tannlæknir. Myndir tóku höfundur og Pétur H. Ólafsson. Pétur H. Olafsson utan við skothúsið. 22 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.