Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Síða 24
ÓLAFUR E. JÓHANNSSON
Endurreisum
urriðann!
- spjallað við Össur Skaphéðinsson, áhugamann um
uppbyggingu urriðans í Efra-Sogi.
Þingvellir eru að sönnu stærsta og merk-
asta perlan á glæstri festi íslenskrar nátt-
úru. Koma þar bæði til þau fágætu náttúru-
undur sem umlykja hvern þann sem þar
kemur, en einnig hitt að magnþrungin ís-
landssagan er þar við hvert fótmál, bæði
landsins sjálfs og fólksins sem það byggir.
A Þingvöllum hafa margar örlagaríkar
ákvarðanir verið teknar í lífi þjóðarinnar
og er sú fyrsta væntanlega kristnitakan árið
1000. En alla tíð, allt frá því land byggðist
og til okkar daga, hafa Þingvellir um margt
verið sameiningartákn þjóðarinnar. Er þar
skemmst að minnast afmælishátíðar í til-
efni 1100 ára byggðar í landinu.
Þótt Þingvellir hafi frá upphafi íslands-
byggðar skipað öndvegi í þjóðarsál ís-
lenskri, er varla hægt að segja að hátterni
landsmanna gagnvart þessari náttúruperlu
hafi endurspeglað mikilvægi hennar. Má
ætla að fyrsta jarðraskið sem þar var fram-
ið hafi fornmenn unnið, þá er þeir veittu
Öxará úr sínum gamla farvegi fram með
Kárastaðahlíðinni niður í Almannagjá,
trúlega til þess að auðvelda vatnsöflun
þingmanna hinna fornu.
Margvíslega hefur verið stuggað við
landinu eftir því sem aldirnar hafa liðið en
mestu breytingarnar á náttúru þessa svæðis
voru þó gerðar á þessari öld. Fjallar þessi
grein um það með hvaða hætti einn áhuga-
manna um verndun lífríkis svæðisins telur
hvernig ráða megi þar nokkra bót á, í því
skyni að gjalda landinu þá skuld sem til var
stofnað um miðbik þessarar aldar.
En fyrst nokkur orð um Þingvallavatn.
Stoðunum kippt undan urriðanum
Talið er að Þingvallavatn hafi myndast
þegar ísöld lauk fyrir meira en tíu þúsund
árum. Alíta vísindamenn að í upphafi hafi
vatnið haft samgang við sjó en urriði og
bleikja, sem áður gengu til sjávar, hafi lok-
ast af í vatninu og þannig hafi orðið til þær
aðstæður sem gerðu mögulega þá sérstæðu
þróun sem síðan hefur átt sér stað hjá fiski-
stofnum vatnsins.
Eina afrennsli Þingvallavatns er Sogið,
en nokkrar ár og lækir renna í Þingvalla-
vatn ofanjarðar og er Öxará þeirra mest.
Talsvert rennsli er þó talið vera í Þingvalla-
vatn neðanjarðar undan blágrýtishraun-
breiðum austan vatns.
Sogið rennur úr Þingvallavatni suðaust-
anverðu. Hefur áin, sem er mest bergvatna
á Islandi, grafið sér gljúfur á milli Dráttar-
hlíðar að vestan en hraunsins að austan.
Sogið rennur með þungum straumi úr
Þingvallavatni, fyrir Dráttarhlíð og eru þar
mikil straumköst og flaumur. Á þessum
slóðum voru gerðar þær breytingar á
24
VEIÐIMAÐURINN