Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Qupperneq 26

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Qupperneq 26
Auðvelt að bera riðmöl í ána Háttarlag urriða og laxa er gjörólíkt. Markmið urriðans í ferskvatni er að éta og því hegðar hann sér þannig að hann er á sífelldu ferðalagi um allt vatnið í ætisleit. Þannig telur Össur að ef Efra-Sog yrði lag- fært myndi fiskurinn, þegar hann fyndi að stórt og mikið vatnsfall væri á nýjan leik komið í farveg Efra-Sogs, leita þangað til þess að hrygna, því þar væru kjörskilyrði til hrygningar. — Er víst að slíkar aðstæður yrðu fyrir hendi, þótt farvegurinn yrði lagfærður? Össur svarar: „Farvegur Efra-Sogsins er þannig að þótt straumurinn hafi á sínum tíma verið gríðarlegur í mynni þessa mikla vatnsfalls, þá sést það við skoðun að botninn er stór- grýttur, sérstaklega ofarlega í Efra-Sogi, þar sem menn töldu að megin hrygningar- svæðið hafi verið. Þar er skjól, bæði fyrir seiðin í uppvextinum og einnig fyrir fiskinn sem þar hrygnir. Þegar slysið varð á þjóð- hátíðardaginn 1959 féll gríðarlegur vatns- flaumur niður gamla farveginn og talið er að með ofurkrafti vatnsins hafi sópast nið- ur í gegnum Sogið megnið af hinni þykku riðmöl sem þar var að finna; bæði möl sem var fyrir framan ármynnið í ríkum mæli og einnig möl sem var í efri hluta Sogsins. Mér sýnist nú samt að þarna sé einhverja riðmöl enn að finna. Það er hins vegar mjög auð- velt að bera riðmöl í ána, eins og menn hafa gert annarsstaðar og þannig búið til hrygningarstaði,“ segir Össur. Endurkoma bitmýs „Ef menn færu nú út í það að hleypa vatninu niður gamla farveginn aftur þá myndi annað gerast. Bitmýið myndi koma aftur. Eg hef orðið var við að það er aðeins farið að kvikna á nýjan leik. Það var reynd- ar eitrað fyrir mýið með því að dreifa skað- ræðis eitri, DTT, bæði á bakka Sogsins og einnig út í ána sjálfa, og um leið hvarf öll silungsveiði í grenndinni. Menn segja mér reyndar að þeir fáu fiskar, sem þó fengust á þessum árum, hafi verið algerlega óætir. í dag hefði aldrei verið leyft að dreifa þessu eitri, hvorki á bakka Sogsins né annarra vatnsfalla, enda flokkast svona náttúru- spjöll undir algert stórslys. En með þessu hvarf bitmýið og um leið hvarf silungurinn og þar með öll veiði árum saman. Nú eru hins vegar teikn á lofti um að mýið og þar með silungurinn séu að koma upp aftur. Allir vita að bitmýið er undirstaðan í fæðu urriðans, eins og menn sjá t.d. í Laxá í Mývatnssveit. Grundvallarskilyrði þess að bitmý nái sér upp er að mikill straumur sé á svæðinu til að mýið fái nægjanlegt súrefni og að með straumnum berist lífrænt rek ofan út stöðuvatninu. Lirfurnar festa sig á fast undirlag við botninn, þar hafa þær úti sérstakt veiðinet og fanga í það lífræna fæðu. Þegar þetta er allt til staðar, straum- urinn, sem flytur með sér súrefnið, lífrænt rek og fast undirlag, þá mun bitmýið koma upp aftur. Og þegar bitmýið kviknar á nýj- an leik er kominn fram höfuðstofn fæðu urriðans í uppvextinum sem dugir honum allt þar til hann fer að stálpast,“ segir Öss- ur. „Og þaðan um allt Suðurlandsundirlendið ...“ „Eg get nefnt það eftir mönnum sem þekktu Efra-Sogið á meðan það var og hét, að bitmýið þar hafi verið rosalegt. Segja menn að þegar það var að koma upp úr vatninu hafi grábrún slikja gjarnan sest á klappirnar sem urðu hálar vegna mýsins. Menn þurftu að gæta sín mjög vel til þess að detta ekki. Halldór Þórðarson, sem vann við að veiða fyrir Svein Benediktsson veiðiréttareiganda og var aðstoðarmaður 26 VEIÐIMAÐURINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.