Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Page 29

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Page 29
ar minna nú en áður. Ég veiddi rosalega mikið hér á árum áður. Þá átti fjölskyldan sumarbústað við vatnið og ég eyddi öllum helgum við veiðar í vatninu yfir sumarið.“ En hugur viðmælanda Veiðimannsins hvarflar sífellt að aðaláhugamálinu, Efra- Sogi: „Það sem nauðsynlegt er að gera er að skapa strauminn í árfarveginum. Síðasta ár hefur Landsvirkjun hleypt töluverðu af vatni ofan í farveg Efra-Sogs, þannig að mikill straumur hefur myndast þar með þeim afleiðingum að bitmý hefur verið að koma upp aftur. Enn kemst þó enginn urr- iði í ána. Það er hins vegar kominn helling- ur af murtu í farveg Efra-Sogsins, en ég hef ekki séð stóran fisk þar enn. Þess vegna verður að opna algerlega fyrir vatnið við virkjunina sem er alveg sjálfsagt því það er ekki brýn þörf fyrir hana lengur. Er ekki nóg af rafmagni í landinu? Steingrímsstöð- in var hið stóra slys og þeir eiga að leggja hana af strax. Ef menn telja hins vegar nauðsynlegt að hafa virkjunina áfram væri jafnvel hægt að hugsa sér að gerð yrði rauf í virkisgarðinn og vatninu hleypt þar niður með jöfnum straumi. Það er lágmark að það verði gert því menn skulda náttúrulega landinu að gera bragarbót á þessu. í dag hefði ekki nokkrum einasta manni dottið í hug að byggja þessa virkjun, og reyndar ekki hinar heldur,“ segir hann. Nú er fyrirhugað að gera endurbætur á Steingrímsstöð, sem er vitlausasta fjárfest- ing sem ég get hugsað mér. Nú er nefnilega tækifærið komið til að greiða þessa skuld við náttúruna,“ segir Össur. Stórfiskastofn „Urriðastofninn í Þingvallavatni er sér- stakur að tvennu leyti. Ég hef hvergi fund- ið heimildir um að til sé stofn þar sem veiðst hefur jafn mikið af eins stórum urr- Margir fiskar, stórir og smáir. Afli úr Soginu þegar best lét. iða og í Efra-Sogi. Að því leyti til er þetta gríðarlega merkur stofn, en hann er jafn- framt merkur fyrir þær sakir að stofninn er það sem vísindamenn kalla landnáms- stofn. Þegar ísöldin byrjaði að réna fyrir 10.000 árum og ísaldarjökullinn tók að Ósvaldur Knudsen og Björn Steffensen í lok góðs veiðidags. Eins og sést á myndinni eru stœrðar urriðar innan um í aflanum. VEIÐIMAÐURINN 29

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.