Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Side 37
um hvort fluga standi undir
nafni ef skipt er um eitt eða
fleiri efni, miðað við upphaf-
lega gerð hennar. Einnig má
deila um hver sé hin upphaf-
lega gerð ákveðinnar flugu
því að í fæstum tilfellum er
hún þekkt svo að öruggt sé.
Margir veiðimenn og flug-
uhnýtarar hafa hrifist af
klassísku flugunum og þá sér-
staklega forminu. Það hefur
líka sýnt sig að laxinn er oft
mjög hrifinn af þeim. Eeir
fluguhnýtarar, sem ekki eiga
helstu efni í þessar flugur en
hafa hug á að bæta úr því,
geta á meðan æft sig á for-
minu og notað þá þau efni sem
þeir eiga fyrir. Pannig verða
kannski til veiðiflugur framtíð-
arinnar. Einnig eru til einfald-
ar fjaðraflugur sem gott er að
hnýta til þess að æfa meðferð
fjaðra. Þar á meðal eru: Blue
Charm, Crosfield, Thunder
and Lightning og Sweep.
Stélrót og stél fest á, var-
ast að byggja upp þykkt
með tvinnanum.
Kraginn er aðeins 2
snúningar, hringvöfvefj-
astfast aftan við tinselið.
Undirvængur nemur við
kragann og liggur þétt
við búkinn.
Vœngurinn byggður upp
og nemur við enda stéls.
Meðalflóknar fjaðraflugur
eru t.d. Durham Ranger,
Black Ranger, Red Sandy,
Black Dose.
Flóknar, klassískar fjaðra-
flugur: Baron, Jock Scott,
Green Highlander, Black
Doctor, Dusty Miller.
Green Highlander er ein af
þessum gömlu flugum. Hún
er leidd af flugu sem var köll-
uð Highlander og nefnd er í
bókinni A Book on Angling
sem er frá árinu 1867. Þessi
litasamsetning hefur orðið
mörgum fluguhnýturum og
veiðimönnum hugstæð. Næg-
ir þar að nefna flugurnar
Þingeying, Colburn Special
og Cosseboom. Allar skarta
þessar flugur gulum og græn-
um litum í mismunandi sam-
setningum.
Höfundur er tannsmiður
og fluguhnýtari
Fullgerð flugan Green Highland-
er. Ljósmynd Gunnar Gunnarsson.
VEIÐIMAÐURINN
37