Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Qupperneq 45
Sleppitjörnin við Fiská.
FISKÁ
í umræðunni um Rangárnar hefur oft
gleymst lítil en falleg bergvatnsá, Fiská,
sem fellur í Eystri-Rangá skammt neðan
við Tungufoss en að honum er Rangá sjálf
fiskgeng. Rangárnar hafa löngum verið
taldar erfiðar til hrygningar vegna sand- og
vikurburðar en Fiská, sem á köflum rennur
um gljúfur og grjót, verið hrygningar- og
uppeldissvæði fyrir lax og sjóbirting sem
gengur á vatnasvæðið.
Lúðvík Gizurarson lögmaður, ættaður
frá Árgilsstöðum sem standa á bakka Fisk-
ár, hefur haft ána á leigu frá árinu 1982 og
sleppti fyrstu árin í hana kviðpokaseiðum
en byrjaði árið 1988, ásamt Einari, syni
sínum, að sleppa gönguseiðum í sleppi-
tjörn sem mynduð var í gamalli malarnámu
við ána. Seiðin, sem voru uggaklippt,
synda sjálf úr lóninu þegar þau eru komin í
göngubúning.
Endurheimtur urðu strax næsta ár þegar
veiddust 30 fiskar úr sleppingunni og sum-
arið 1990 gekk laxinn inn í sjálft gryfjulónið
VEIÐIMAÐURINN
og árlega síðan. í sumar var laxi lokuð leið
inn í lónið en hann látinn ganga í litla tjörn
sem er í útfallslæknum. Þar voru teknir í
klak í haust 19 laxar og 4 vænir sjóbirtingar.
Af 48 örmerkjum, sem skiluðu sér úr
laxi veiddum í Eystri-Rangá árið 1993,
voru 33 úr Fiskársleppingu 1992, sam-
kvæmt skýrslu Veiðimálastofnunar.
Veiddar endurheimtur hafa síðustu ár
verið um 1%. Seiðaslepping vorin 1993-’94
hefur verið á vegum Veiðifélags Eystri-
Rangár.
GP
Frá Fiská.