Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Síða 56
VEIDISKÝRSLUR ’95
ELLIÐAÁR
Fyrstu 3 laxarnir komu í kistuna við raf-
stöðina 30. maí. Árnar voru opnaðar 15.
júní á hefðbundinn hátt með því að borgar-
stjóri og aðrir forráðamenn Reykjavíkur-
borgar og Rafmagnsveitu Reykjavíkur
renndu fyrst í árnar. Fyrsti laxinn lét á sér
standa og veiddist ekki fyrr en viku seinna
eða 22. júní. Ganga var mjög treg í júní-
mánuði og þann mánuð veiddust aðeins 16
laxar.
Bragi Jónsson og Jón P. Einarsson með „fullt
hús“.
Laxagöngur í árnar voru með dræmasta
móti í upphafi veiðitímans en í lok veiði-
tímans sýndi teljari við rafstöð að 2232 lax-
ar höfðu farið þar um samanborið við 2041
lax 1994. Þetta skeði þrátt fyrir að rennsli
ánna var fyrir neðan meðallag allt sumarið
eða niður í l,5-2m3 miðað við meðalrennsli
sem er 4,5m3.
Teljarinn við Elliðavatnsstíflu taldist
ekki vera öruggur og gaf engar áreiðanleg-
ar tölur en starfsmenn í rafstöð telja að
mjög lítið af laxi hafi gengið upp í vatn.
Alls veiddust síðastliðið sumar 1088 lax-
ar (1994-1131, 1993-1391) og var meðal-
þyngdin 5,1023 p. eða 2,5510 kg. (1994-
4,9412 p.). Fluguveiði var heldur lakari en
á síðastliðnu sumri, eða 40,8 %, miðað við
62,6% árið 1994.
Síðari hluta sumars varð vart við laxa
sem að bersýnilega voru sýktir og voru þeir
sendir til rannsóknar til Tilraunastöðvar
Háskólans í meinafræði að Keldum. Rann-
sóknin leiddi í ljós að um var að ræða svo-
kallaða kýlapest. Hún herjar á ýmsar fisk-
tegundir, bæði í söltu og fersku vatni.
Þegar það kom í ljós, að hér var alvarleg
sýking komin í Elliðaárlaxinn, var brugðist
hart við af ráðamönnum Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og sett í gang alger sótthreins-
un á öllum veiðitækjum og búnaði veiði-
manna og var það framkvæmt af veiðivörð-
um af mikilli nákvæmni.
Þegar þessi skýrsla er gerð hefur verið
ákveðið að taka klaklax, eins og venja hef-
ur verið um árabil, því hrognin eru ekki
sýkt af þessari bakteríu. í vor er áætlað að
fanga allan hoplax og farga honum. Síðan
verður tíminn að leiða í ljós hversu langan
tíma tekur að hreinsa þennan sterka Ell-
iðaárstofn af þessari óværu. Sýkingin er
talin stafa af því meðal annars að kýlaveiki-
bakterían þrífst best við þau skilyrði sem
voru í árvatninu í sumar en hitinn var oft
16-18 gráður og laxinn staðnæmdist oft í
svokölluðum þrepum, sem eru neðan Ár-
bæjarstíflu og var þar oft þéttskipað, enda
veiddust þar fleiri laxar en í fyrra eða 372 á
móti 244 árið 1944.
56
VEIÐIMAÐURINN