Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Side 74
Matreiðslumeistarar veitingahússins við SKÓLABR Ú elduðu súpuna og stilltu uppfyrir Ijósmyndar-
ann, Braga Þ. Jósefsson.
inna birgða úr ískistunni og eldisfisks úr
búð.
Flestir vilja hafa súpuna matarmikla. I
þetta magn má hiklaust fara rúmt kíló af
fiski. Til þess þarf einn fjögurra punda lax
eða tvær tveggja punda bleikjur ellegar sjó-
birtinga.
Þegar búið er að flaka þarf að beinhreinsa
vandlega. Beinin í hnakkastykkjunum er
best að draga út með töng. Þunnildi af eldis-
fiski eru oft óþarflega feit, fiskurinn er ekki
sveltur nóg fyrir slátrun, og borgar sig að
skáskera neðsta hluta þeirra af, þá fylgja
bein og kviðuggar með.
Flökin eru lögð á roðið, gott að hafa
dagblaðapappír undir og fiskurinn skorinn
úr roðinu í fingursvera strimla. Þá eru tekin
til 300 gr. af rækjum og svipað magn af
kræklingi.
Fiskmetinu er blandað varlega í súpuna
sem er hituð upp undir suðumark — þannig
að ekki bobli heldur heyrist pits, pits og
örfínar suðunálar berist upp á yfirborðið.
Súpunni er haldið við þetta hitastig í 7 mínút-
ur.
Nú er komið að úrslitastundinni og um að
gera að smakka gaumgæfilega. Hafi í upp-
hafi aðeins verið látinn hálfur lítri af rjóma í
súpuna og bragðstyrkur í efri mörkum trúi
ég að hún þoh örlítið meiri ijóma því að
hann gerir ekkert nema að bæta hana.
Súpuna má þykkja með því að hræra tvær
eggjarauður saman við rjómann. Hrærunni
er hellt varlega út í og hitað aftur upp undir
suðumark.
ATHUGIÐ AÐ SÚPAN MÁ EKKI
SJÓÐA EFTIR AÐ EGGJARAUÐURN-
AR ERU KOMNAR ÚT Í!!!
Með þessari súpu er gott að borða brauð-
lengjur með ostajukki sem konan mín lét
mig hafa uppskrift að.
Brauðið er rist upp, í sárið sett mauk sem í
er:
2 msk majónes,
2 tsk smjör,
2 msk rifinn ostur,
1/2 tsk hvítlaukssalt.
Lengjan er vafin í álþynnu og hituð í miðj-
um ofni við 200 gr Celcíus í 13 mínútur.
Þegar öllu þessu er að ljúka þarf að dúka
borð og setja mottur undir hvem disk því að
þá verður að sjóðhita áður en súpupotturinn
er borinn fram og sagt:
„Gjörið svo vel.“
Verði ykkur að góðu. Gleðileg jól!
GP
74
VEIÐIMAÐURINN