Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Page 21
Þróun byggingarkostnaðar samanborið við byggingarvísitölu 1940 -1989.
(Byggingarkostnaður 1940 = 100 stig. Byggingarvísitala = 100 stig allt tímabilið.)
200
175
150
125
100
1940 1950
1960 1970 1980 1990
sína á háu verði. Þá vann hús-
næðislánakerfið í áratugi gegn
hagræðingu. Mun auðveldara var
að fá lán til að byggja en kaupa
notað húsnæði svo kaupendur tóku
íbúðir í byggingu fram yfir notaðar
eignir og greiddu hærra verð fyrir
þær. Mikil vélvæðing í byggingar-
iðnaði hefði átt að skila aukinni
framleiðni og lægra verði. I flestum
greinum iðnaðar eru stöðugar
framfarirsemkomafram ílækkandi
vöruverði. I verktakastarfsemi er til
dæmis hörð samkeppni og
tækniframfarir hafa skilað lágum
framkvæmdakostnaði. Eðlilegt
væri að sömu þróunar gætti í
byggingariðnaði því þar hefur orðið
mikil tæknivæðing. Framleiðni í
greininni er þó enn lítil, um
helmingur af því sem gerist í
grannlöndum okkar. Fyrir þremur
áratugum var vélvæðing við hús-
byggingar nær óþekkt. Síðan hefur
byggingarkostnaður þó aukist árlega
um 1,3% umfram almennar verð-
hækkanir. I stað þess að auka hag-
kvæmni hefur tilkoma tækjanna
hækkað byggingarkostnað. Kostn-
aði við vélvæðingu og tækjakaup
hefur einfaldlega verið velt út í
verðlagið. Byggingariðnaðurinn
verður að lækka framleiðslu-
kostnað mikið á næstu árum, jafnvel
um 20%-25%. Benda má á ýmsa
þætti sem stuðlað geta að lækkun
kostnaðar.
Byggingartími er mun lengri hér á
landi en annars staðar. A byggingar-
tíma hlaðast upp vextir af lánum.
Með því að hraða framkvæmdum
má minnka byggingarkostnað. Fyrir
hálfri öld var algengt að menn
byggðu hús á nokkrum mánuðum
og unnu þó allt í höndunum. Hin
tæknivæddu fyrirtæki í dag ættu
ekki að þurfa lengri tíma. I flestum
greinum eru
hönnun og framleiðsla nátengd,
oftast unnin í sama fyrirtæki. I
byggingariðnaði hannar einn en
annar framleiðir. Hönnuðir hafa
engan hvata til að hanna ódýr hús.
Þóknun arkitekta og verkfræðinga
er oftast reiknuð sem hlutfall af
áætluðum kostnaði. Af því leiðir
að hönnuðurinn fær því hærri
þóknun sem byggingarkostnaður er
hærri. Til þess að hús verði ódýr
þarf að leggja áherslu á hagkvæmni
strax við hönnun. Arkitektar og
aðrir hönnuðir bygginga leggj a ekki
áherslu á að hanna ódýr hús.
19