Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Side 25

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Side 25
stjórnin á grundvelli upplýsinga um byggingarkostnað félagslegra íbúða á árinu 1991. Lög um félagslegar íbúðir gera ráð fyrir að framkvæmdaaðilar leiti eftir hagkvæmasta byggingarkostnaði. Húnæðismálastjórn skilgreinir hvaða kröfur eru gerðar til félagslegra íbúða bæði varðandi kostnað og gæði. Það er hins vegar undir framkvæmdaaðilunum komið að leita þeirra leiða sem fara þarf til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma. Félagslega húsnæðislánakerfið hefur því veru- leg áhrif á þróun byggingarkostn- aðar hér á landi. HÚSBRÉFAKERFIÐ í húsbréfakerfinu eru engin við- miðunarmörk fyrir byggingar- kostnað sambærileg við viðmiðunarmörkin í félagslega kerfinu. Umsækjendur um hús- bréfalán geta byggt hvernig íbúðir sem þeir vilj a. Þær mega þess vegna vera dýrar, ef umsækjendur óska þess. Eina skilyrðið sem umsækj- endur um húsbréfalán þurfa að uppfylla er að geta sýnt fram á að þeir geti staðið undir fyrirhugaðri fjárfestingu. Hámarkslán getur numið allt að 65 % af byggingar- kostnaði, þó aldrei hærri fjárhæð en 6 millj. kr. Ahrif húsbréfa- kerfisins á þróun byggingar- kostnaðar eru hins vegar þrátt fyrir allt töluverð samanber eftirfarandi. Með tilkomu húsbréfakerfisins hefur ráðgjöf varðandi byggingar- kostnað, greiðslubyrði og greiðslu- getu aukist til muna frá því sem áður var. Þó svo að slíka ráðgjöf þurfi eflaust að auka enn frekar. Umsækj endur um húsbréfalán þurfa að sækja urn sérstakt greiðslumat hjá lánastofnunum áður en hafist er handa við fyrirhugaða húsbyggingu, ef viðkomandi ætlar að notfæra sér húsbréfakerfið til fjármögnunar á byggingunni. Það er því liðin tíð að húsbyggjendur geti hafist handa við húsbyggingu upp á von og óvon, það verður að liggja fyrir við upphaf framkvæmda hvernig viðkomandi húsbyggjandi ætlar að fjármagna bygginguna. Þannig er óbeint hvatt til hagkvæmra byggingahátta í húsbréfakerfinu og væntanlega til lækkunarábyggingarkostnaði. Það er hinsvegar undir húsbyggjendum sjálfum komið hvort svo verður í raun eða ekki. LÁN EÐA STYRKIR TIL TÆKNINÝJUNGA OG ANNARRA UMBÓTA í BYGGINGARIÐNAÐI Heimilt hefur verið að veita lán eða styrki til tækninýjunga í byggingariðnaði úr Byggingarsjóði ríkisins. Fá lán eða styrkir voru veitt fyrr en frá og með breytingu sem gerð var á lögum um Húsnæðis- stofnunina vorið 1991 varðandi þetta atriði. Þá var heimilað að veita lán eða styrki til tækninýj unga og annarra umbóta í byggingar- iðnaði. Frá því þessi breyting var gerð hefur húsnæðismálastj órn lagt rneiri áherslu á þennan þátt í starfsemi stofnunarinnar en áður. Nú er auglýst sérstaklega eftir unv sóknum um fyrirgreiðslu úr þessum lánaflokki. Þannig eru þeir sem vinna að tækninýjungum og öðrum umbótum í byggingariðnaði hvattir til að gera grein fyrir hugmyndum sínum. Áárinu 1991 veittihúsnæðismála- stjórn styrki til 5 verkefna á sviði tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði. Styrkir þessir voru samtals að fjárhæð 4,48 millj. kr. I júní síðastliðnum samþykkti húsnæðismálastjórn úthlutun úr þessum lánaflokki fyrir yfirstand- andi ár, samtals að fjárhæð 13,75 millj. kr. vegna 12 verkefna. Sú nýbreytni var tekin upp, að hluti þeirra verkefna sem voru samþykkt verður fjármagnaður í samvinnu stofnunarinnar og Rannsóknaráðs ríkisins, eða 6 samþykkt verkefni, samtals að fjárhæð 4,65 millj. kr. Þau verkefni á sviði tækninýjunga og annarra umbóta í byggingar- iðnaði sem hafa verið styrkt, eru jafn-fjölbreytileg og fjöldi þeirra segir til um. Hvort þessi verkefni eiga eftir að leiða til þeirrar þróunar í byggingariðnaði sem vonast er til, á eftir að koma í ljós. Sum þessara verkefna munu e.t.v. hafa áhrif á þróun byggingarkostnaðar hér á landi í framtíðinni. Á Húsnæðisstofnun ríkisins er ekki unnið að sérstökum verkefnum er varða byggingarkostnað íbúðar- húsnæðis. Af því sem hér hefur verið rakið má hins vegar lj óst vera, að áhrif stofnunarinnar á þróun byggingarkostnaðar eru þó nokkur, jafnt fyrir tilstuðlan lánastarfsemi stofnunarinnar sem og vegna sér- stakra lána eða styrkja til tækni- nýjunga og annarra umbóta í bygg- ingariðnaði. ■ 23

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.