Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Page 33
STALGRINDARHUS
VANMETINN KOSTUR í
BYGGINGARIÐNAÐI
BERGÞÓR KONRÁÐSSON
REKSTRARHAGFRÆÐINGUR.
Ismáfrétt í Metal Bulletin í
mars á þessu ári kom fram
að hlutfall stálgrindarhúsa
færi stöðugt vaxandi á
kostnað húsa úr öðrum byggingar-
efnum. Þannig væri hlutfall stáb
grindarhúsa í Bretlandi í byggingum
tvær hæðir eða fleiri 58% en hefði
aðeins verið 33% árið 1980.
N otkun steinsteypu hefði minnkað
mikið á sama tíma enda veggja-
einingar yfirleitt úr öðrum efnum,
t.d. gleri, plasti, timbri eða mátstein-
um þó að í þessu sambandi þurfi
ekki að vera um að ræða annað
hvort eða, heldur oft skynsamlegt
að nota þessi byggingarefni saman.
Sama þróun mun eiga sér stað víðar.
I Bretlandi og í Skandinavíu hefur
stál farið vaxandi í burðarvirkjum
og sést í sívaxandi mæli í verslana-
miðstöðvum og skrifstofuhúsnæði
en í minna mæli í íbúðarhúsnæði
þó svo að ör þróun sé að eiga sér stað
á því sviði. Þannig jókst t.d. hlutfall
stálgrindarhúsa í Finnlandi úr 7%
af heildarbyggingum í um 17% á
árunum 1981-1991 og virðist ört
vaxandi.
Ætla verður að þessi þróun hafi átt
sér stað fyrst og fremst vegna þess að
um ódýrari byggingaraðferð sé að
ræða þó svo að fleiri eiginleikar
stálsins skipti hér máli, t.d. mögu-
leikar í hönnun - stál og gler
(sbr.Perluna) svo og fjölbreytt
klæðningarefni o.fl. Sú spurning
Tengibygging Sindra-Stáls, stálið gefur möguleika á léttri og skemmtilegri hönnun.
31