Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Page 59
HÓTEL OG VEITINGASKÓU í
LYON, FRAKKLANDI
VERKEFNI VIÐ ARKITEKTAHÁSKÓLANN í OSLÓ
Lyon er sá staður í
Frakklandi sem er
einna þekktastur fyrir
matargerð og margir
vilja líta á staðinn sem
„Mekka“ kokkakúnstarinnar og
málsvara hins franska eldhúss. Lyon
hefur einnig orðið Ólympíu-
leikvangur þeirra sem vilja reyna
með sér í list matargerðar. Það er
því engin tilviljun að hótel og
veitingaskóli urðu fyrir valinu sem
verkefni þegar frönsku arkitektarnir
Jourda og Perraudin voru gesta-
kennarar við skólann vorið 1990.
þjónuðu hver sínu hlutverki, einn
heilsuræktinni, annar gestum
hótelsins og sá fínasti var jafnt
ætlaður gestum hótelsins sem
sælkerumbæjarins. Varmeiningin
að framúrskarndi matargerð myndi
kynna skólann út á við. Hótelið
skyldi rekið af skólanum og yrði
starfsvettvangur kokka og veitinga-
manna framtíðarinnar. Skólinn
þurfti að hafa aðstöðu fyrir bóklega
kennslu, heimavist fyrir nemendur
með mötuneyti og félagsaðstöðu.
Heildarstærð er um það bil 11000
FORSÖGN, INNRI ÞÆTTIR
I verkefninu var gert ráð fyrir hóteli
ásamt veitingastöðum og heilsu-
rækt, aðstöðu fyrir minni ráðstefnur
og samkomur. Veitingastaðirnir
STAÐSETNING, YTRI
ÞÆTTIR
Hótelinu og skólanum var valinn
staður við Le Confluent austan við
ármót Rhone og Saone. Staðurinn
57