AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 35
í fráveitumálum
URBÆTUR
SIGURBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR
DEILDARSTJÓRI UMHVERFISRÁÐUNEYTI
Hér er ætlunin að fjalla um breyttar
áherslur í fráveitumálum og þau ákvæði
í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994
sem taka mið af tilskipun ráðs Evrópu-
bandalagsins nr. 91/271/EBE um hreinsun skólps frá
þéttbýli.
Tilgangur fráveitukerfis frá íbúðabyggð er m.a. sá
að uppfylla settar kröfur um hreinlæti, með því að
veita skólpi í lokuðum leiðslum frá íbúða- og
iðnaðarhverfum og að vernda umhverfið með því að
hreinsa það og losa í viðtaka á þann hátt að það
valdi sem minnstri mengun. Hreinsun fráveituvatns
er háð því hvernig það er samsett og í hvers konar
viðtaka því er veitt. Hreinsun miðar fyrst og fremst
að því að minnka magn og draga úr áhrifum fastra
efna, næringarefna og gerla í fráveituvatni. Viðtaki
er það svæði sem tekur við fráveituvatni, svo sem
sjór, á eða jarðvegur. Þau áhrif sem fráveituvatn hefur
á umhverfið fara eftir aðstæðum, þ.á m.hreinsun þess
og getu viðtakans til að þynna út og eyða áhrifum
mengunarinnar. En hvernig svo sem fráveituvatn er
meðhöndlað þá er það náttúran sjálf sem að lokum
tekur við og eyðir eða þynnir það sem hún getur
unnið á. Sé viðtakinn hagstæður þá er hann vel til
þess fallinn að þynna og eyða þeim efnum sem
berast með fráveituvatninu án þess að umhverfið
verði fyrir neikvæðum áhrifum. Hér á landi er lítið
um mengandi iðnað, landið er strjálbýlt og skilyrði í
sjónum umhverfis landið eru víða hagstæð. Aðstæð-
ur hér við land eru t.d. þannig að það er fyrst og
fremst sýnileg mengun sem veldur áhyggjum, en ekki
næringarsölt sem eru oft vandamál á þéttbýlum
svæðum Evrópu. Rannsóknir í Reykjavík á skólpi
frá íbúðabyggð benda til þess að í frárennslinu íinnist
ekki efni sem eru í slíku magni eða náttúrunni svo
framandi að ekki sé óhætt að sleppa þeim út eftir
grófhreinsun eða síun. Frekari hreinsun kann þó að
reynast nauðsynleg í vissum tilfellum.
Nauðsynlegt er að skoða hreinsun fráveituvatns og
aðstæður f viðtaka í samhengi. Hreinsun skólps er
venjulega skipt í þrjú þrep. Fyrsta þrepið miðar að
því að fjarlægja ýmsa fasta hluti með ristum og/eða
botnfellingu. Með öðru þrepinu er súrefnisþörf frá-
veituvatns minnkuð á líffræðilegan hátt og þriðja
þrepið miðar að því að minnka næringarefni í
fráveituvatni. Ekkert þessara hreinsunarþrepa hefur
afgerandi áhrif á hreinsun þungmálma úr skolpinu.
Viðtaki sér að mestu um að eyða gerlum og hafa
ýmsir umhverfisþættir svo sem birta, hitastig og seltu-
magn áhrif á slíkt.
Þegar hugað er að úrbótum í fráveitumálum þarf
bæði að taka mið af sérstöðu íslands og þeim alþjóð-
legu skuldbindingum sem íslendingar hafa gengist
undir. Tilskipanir EB, er varða vatnsmengun og með-
ferð skólps, eru hluti EES-samningsins. íslendingar
eru aðilar að Parísar- og Oslóarsamningnum sem
hefur það að markmiði að koma í veg fyrir mengun
sjávar. í þessum alþjóðasamningum eru almennar
reglur um hreinsun fráveituvatns settar fram í til-
mælum sem miða að því að draga verulega úr
streymi mengandi efna, sér í lagi næringarefna, til
svæða sem eru talin viðkvæm. í tilskipun EB er kveðið
á um að skilgreina skuli viðtaka sem viðkvæman eða
síður viðkvæman. Opin hafsvæði eða sjór teljast al-
mennt síður viðkvæm svæði ög gildir þar reglan um
fyrsta þreps hreinsun. Á síðari árum hefur þróun í
fráveitumálum á alþjóðavettvangi verið í þá átt að
setja strangari reglur um meðhöndlun fráveituvatns.
Með tilliti til markmiða tilskipunar EB og vísunar í fund
sérfræðinga EFTA og EB í Brussel í júní 1991, þar
sem farið var yfir efni hennar, er litið svo á að notkun
síu til hreinsunar nægi síður viðkvæmum svæðum
svo markmiðum tilskipunarinnar sé náð. íslendingar
og Norðmenn samþykktu tilskipunina með þennan
skilning að leiðarljósi. EB hefur ekki gert athugasemd
við þetta, þ.e. að síun á skólpi jafngildi fyrsta þreps
hreinsun. En eftir stendur að til þess að fyrsta þreps
hreinsun á fráveituvatni sé talin nægjanleg verður
að skilgreina viðtakann sem síður viðkvæman. Slík
skilgreining þarf að liggja fyrir rökstudd með mæl-
inganiðurstöðum.
Sjórinn hér við land getur á flestum stöðum dreift og
33