AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 80

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 80
Fólk vill nýjungar en við eigum ekki kost á neinum styrkjum eða hagstæðum lánum til að koma nýjum hlutum í framleiðslu. Kostnaðurinn lendir oftast að mestum hluta á framleiðendunum. Það lýsir viðhorfinu vel sem einhver sagði við opnun sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur nýlega, en þar voru sýndir hlutir sem höfðu verið á sýningunni í Bella Center: „Segiö svo að þaö sé ekki uppgangur í íslenskum húsgagnaiðnaði Það er enginn uppgangur í íslenskum húsgagna- iðnaði! Það hefur verið mikill uppgangur í hönnun íslenskra húsgagna, en um leið og eitthvað bendir til þess að viðkomandi húsgögn geti orðið góð sölu- vara eru þau sett í framleiðslu erlendis." AFLEIÐINGAR SÝNINGA ERLENDIS „Síðastliðin tvö ár hefur Félag húsgagna- og innan- hússarkitekta sent hluti á húsgagnasýninguna í Bella Center. það hefur m.a. haft í för með sér að fram- leiðsla nokkurra góðra húsgagna hefur verið flutt úr landi. Þetta þýðir ekki einungis að við missum vinnu heldur einnig að kostnaðurinn sem framleiðandinn hér heima hefur lagt í frumsmíði viðkomandi hluta skilar sér aldrei. Mér finnst vera kominn tími til að skoða þessi mál. Það er þreytandi að leggja mikla forvinnu og kostnað í að framleiða hluti og eiga á hættu að sjá á eftir framleiðslunni úr landi. En þetta á sér ýmsar skýr- ingar, m.a. þær að við höfum ekki þá þekkingu eða vélakost sem þarf til fjöldaframleiðslu. Húsgagna- iðnaðurinn er staðnaður og með sama áframhaldi deyr þekkingin smám saman út. Það er enginn að læra þessar iðngreinar í dag. Það þarf að skapa þeim sem eru að vinna í hús- gagnaiðnaðinum, þ.e. hönnuðum og framleiðendum í sameiningu, aðstöðu til að þróa og framleiða hús- gögn og koma þeim á markað. Að búa til húsgagn frá upphafi er mörg hundruð þúsunda króna dæmi. Þessi vinna er öll unnin í sjálfboðavinnu. Öll fyrirtæki í iðnaði borga í Iðnlánasjóð. En það er einungis úthlutað styrkjum og lánum til véla- og fasteignakaupa eða til nýsköpunar. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að fá þar fjármagn til þróunar- og framleiðsluverkefna?" HLUTVERK HÖNNUNARDAGS „Það hefur verið haldinn Hönnunardagur hér þrisvar sinnum. Út úr því hafa komið margir góðir hlutir, en hönnuðirnir og framleiðendurnir hafa ekki fjárhags- legt bolmagn til að fylgja hlutunum eftir. Við sem þegar vorum búnir að leggja í mikinn kostnað við frumsmíði hluta þurftum að auki að borga 180.000 kr. til að fá að vera þátttakendur í síðasta Hönnunar- degi. Auk þess lá mikill kostnaður fyrir hvern og einn í að halda sýninguna. Engir fjármunir runnu til að styrkja framleiðsluna. Iðnaðarráðuneytið veitti að vísu hönnunarviðurkenningu, en síðan var málið búið af þess hálfu. Hönnunardagurinn ætti fyrst og fremst að vera til þess að finna hluti sem dómnefnd þætti vert að styrkja til frekari þróunar og framleiðslu fyrir íslenskan markað. Það væri mikil hjálp til að koma íslenskum 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.