AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Blaðsíða 52
4. Við allar aflstöðvar Landsvirkjunar er markvisst
unnið að því að auka gróður í nánasta umhverfi þeirra
til hagsbóta fyrir þá sem búa og starfa á svæðinu en
einnig er þetta mikilvægt til þess að hefta sandblástur
sem getur skemmt viðkvæman búnað stöðvanna. Ef
til vill er Þjórsárdalurinn og nánasta umhverfi Búrfells-
stöðvar skýrasta dæmið um árangur af þessari
starfsemi Landsvirkjunar. Þrátt fyrir Heklugos hefur
tekist að breyta þar svartri öskuauðn í gróðurvin.
Landsvirkjun hefur þar einnig látið til sín taka á sviði
ferðamála, ef svo má segja, því í Þjórsárdal útbjó
Landsvirkjun sundlaug sem fyrirtækið rekur í sam-
vinnu við Gnúpverjahrepp, auk þess sem það hefur
einnig haft umsjón með þjóðveldisbænum sem var
reistur á sínum tíma í næsta nágrenni Búrfellsstöðvar.
5. Landsvirkjun hefur á undanförnum árum rekið
sumarvinnuflokka skólafólks, með alls rúmlega 200
unglingum í störfum á hverju sumri. Hafa þeir flestir
verið staðsettir í stöðvum fyrirtækisins og sinna
ræktun, viðhaldi og frágangi í nágrenni stöðvanna.
Á síðastliðnu ári var ráðist í það að fá landslags-
arkitekta og aðra hæfa menn til að gera áætlanir um
verkefni þessarar starfsemi nokkur ár fram í tímann
þannig að starfið verði unnið eftir markvissu skipulagi
á umhverfi stöðvanna. Þá hefur verið prófað að fella
fræðslustarf, m.a. um umhverfismál, jarðfræði og líf-
fræði, inn í vinnu sumarfólksins þannig að mannrækt
eigi sér stað samhliða öðrum ræktunarstörfum. Hefur
tilraun þessi gefið góða raun og er ætlunin að hér
verði um fastan þátt að ræða í starfsemi þeirri er
tengist sumarvinnufólkinu.
6. Á undanförnu ári hefur verið unnið að vissri endur-
skipulagningu Landsvirkjunar og breytingu á ýmsum
starfsháttum innan fyrirtækisins. Því verki er nú að
Ijúka og búið að leggja grunn að svonefndri gæða-
stjórnun innan Landsvirkjunar sem nýtast mun í þágu
umhverfismálastjórnunar á vegum fyrirtækisins.
Af því sem hér hefur verið rakið má Ijóst vera að
Landsvirkjun gerir sér fyllilega grein fyrir þeirri ábyrgð
sem á fyrirtækinu hvílir í umhverfismálum. Þau eru
snar þáttur í starfsemi þess og er farsæl meðferð
þeirra forsenda þess að okkur auðnist að gera orku-
lindir landsins að auðlindum með hagkvæmri nýtingu
þeirra í sátt við umhverfið. ■
SANDKASSASANDUR
GÖNGUSTÍGAEFNI
SKRAUTMÖL
lábarið brúnamáð eða brotið,
ýmsir stærðaflokkar
BJÖRGUN HF.
Sævarhöfða 33, I 12 Reykj’avík
sími: 87 18 33 fax: 67 45 57
50