AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 15
MIKILVÆGT AÐTREYSTA UNGU FÓLKI
slenskir tæknimenn sækja menntun sína til
margra landa, sem gerir tækniþekkingu hér
mjög alhliða og fjölbreytta. Það gerir okkur kleift
að leysa sjálf okkar eigin verkefni. Hér á íslandi
eru sérstakar staðbundnar aðstæður, sem við íslend-
ingar einir þekkjum til hlítar, og það veitir íslenskum
byggingariðnaði ákveðið forskot. Að öðru leyti er
varla hægt að segja að íslendingar hafi sérþekkingu
á einhverju sviði mannvirkjagerðar umfram aðrar
þjóðir.
Hitt er annað mál að landið kennir mönnum að bjarga
sér við mjög erfiðar aðstæður. íslenskir tæknimenn,
sem farið hafa til starfa erlendis.hafa staðið sig afar
vel og ekki verið neinir eftirbátar annarra. Það hefur
sýnt sig að þeir eru sjálfstæðir og gefast ekki upp
þótt móti blási. Mér virðist líka að þeir hafi vald á
fleiri tungumálum en gengur og gerist hjá íbúum stór-
þjóða. Islendingar eiga þvt fullt erindi I alþjóðlega
samkeppni á þessu sviði og það er í raun nauðsyn-
legt að íslendingar herði þann róður, því smæð
heimamarkaðarins setur vexti fyrirtækjanna og
fjölbreytni þröngar skorður.
Stór þáttur í að ná árangri er stjórnun verkefnanna
og fyrirtækjanna.Það þarf að nýta hugvit og sköp-
unargáfu margra við lausn verkefna og þar er ákaf-
lega mikilvægt að treysta ungu fólki með ferskar hug-
myndir en það er helst það, sem mér hefur þótt skorta
á íslandi. Raunar óttast ég að ungt fólk eigi almennt
oft erfiðara með að komast að nú á tímum heldur en
fyrir nokkrum áratugum þegar skortur á menntuðu
fólki gat opnað mikla möguleika fyrir fólk, sem var
að koma nánast frá prófborði. Hugmyndasamkeppni
og útboð vega á móti þessu og gefa hæfileikafólki
kost á að njóta sín, t.d. á sviði hönnunar, þar sem
tiltölulega ungt og óþekkt fólk ber oft sigur úr býtum.
Fyrirtæki í byggingariðnaði hafa lengi búið við mikla
samkeppni hér innanlands og nú reynir aðallega á
það með meiri opnun á milli landa að íslendingar
hafi sjálfstraust til að stæla vöðvana í samkeppni á
alþjóðlegum markaði. ■
PÁLL SIGURJÓNSSON, FRAMKVSTJ. ÍSTAKS