AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 48
B Y G G I N G A
Árið 1995 verða notaðir meira en 8 milljón m2 til þess
að klæða byggingar að utan. Áætlað er af rannsókn-
araðilum í Danmörku (European Construction Re-
search) að árleg notkun klæðningarefna þar vaxi í
20 milljón fermetra árið 2005. Áætlað er að mesti
vöxturinn verði í múrsteinumjoftsteypu (aerated con-
crete), málmklæðningum og staðsteypu.
Meðan kommúnistar voru við völd voru háhýsi aðal-
lega byggð úr forsteyptum einingum, en múrsteinar
og loftsteypa notuð í íbúðarhús einkaaðila. Gert er
ráð fyrir að múrsteinar og loftsteypa verði áfram
notuð í íbúðarhús einkaaðila, en að mjög mikið dragi
úr notkun forsteyptra eininga. Mikil aukning hefur
verið á notkun staðsteypu, málmklæóninga og glers
á undanförnum árum og eru þessi byggingarefni nú
að mestu ríkjandi í verslunarhúsnæði.
Meiri hluti þessara byggingarefna er framleiddur í
R F R É T T I R
Póllandi, þótt málmklæðningar, flísar og sérstakur
múrsteinn séu flutt inn í vaxandi mæli í byggingar
sem eru reistar fyrir erlent fé.
Margir aðilar hafa sýnt þessum markaði áhuga enda
er hann sá stærsti í Austur- Evrópu. Mörg fyrirtæki
hafa því opnað söluskrifstofur í Póllandi eða keypt
hluta í pólskum fyrirtækjum sem framleiða klæðn-
ingar. Nú þegar hafa fyrirtæki frá Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Þýskalandi, Hollandi og Austurríki keypt
hlut í pólskum fyrirtækjum sem framleiða klæðningar,
en gert er ráð fyrir að klæðningarfyrirtæki á Norður-
löndunum og öðrum Evrópulöndun muni á næstu
árum kaupa sig inn í pólsk klæðningarfyrirtæki eða
taka við þeim.
Frekari upplýsingar veitir Byggingarþjónustan h.f. í
síma 561-11-11.
F R É T T A T I
Hugmyndasamkeppni
Skipulag ríkisins og umhverfisráðuneytið hafa
ákveðið að boða til skipulagsþings í júní 1996 en þá
verða liðin 75 ár frá setningu fyrstu skipulagslaga á
íslandi. í tengslum við þingið verður einnig efnt til
hugmyndasamkeppni.
Áætlað er að halda þingið í Reykjavík dagana 6. og
7. júní 1996. Þátttaka verður öllum opin en áhersla
verður lögð á þátttöku fagfólks og embættismanna
sem starfa að skipulagsmálum.
Gert er ráðfyrirtveggjadaga þingi. Fyrri daginn verði
fjallað um framtíðarsýn fyrir byggð og búsetu í land-
inu og stjórn og yfirsýn skipulagsmála. Síðari daginn
verði fjallað um afmarkaðri þemu. Nánari dagskrá
verður kynnt snemma á næsta ári og þá verður þátt-
tökuskráning auglýst.
Þá hefur verið ákveðið að efna til hugmyndasam-
keppni um „ísland árið 2018“, þegar 100 ár verða
liðin frá fullveldisstofnun. Samkeppnin verður öllum
opin en þátttakendum er ætlað að fjalla um land-
notkun og landnýtingu, byggð og búsetu eða ein-
staka þætti sem falla undir skipulagsmál.
L K Y N N I N G
og skipulagsþing 1996
Lýst er eftir framtíðarhugmyndum um t.d. samgöng-
ur, byggðamynstur, landbúnað, iðnað, orkunýtingu,
híbýli, útivist eða frístundabústaði. Ýmislegt annað
sem tengist landnotkun kemur einnig til greina.
Tillögur er hægt að senda inn sem ritgerðir, teikning-
ar, myndbönd eða á annan skýran hátt sem dóm-
nefnd skilgreinir nánar.
Markmið og tilgangur með samkeppninni er að vekja
athygli á skipulags- og umhverfismálum og þeim
mikla hraða sem er í þróun þeirra mála. Valdar hug-
myndir verða gefnar út í skýrslu og verða jafnframt
notaðar sem hugmyndabanki í riti um ísland árið
2018 sem Skipulag ríkisins stefnir að því að gefa út
árið 1997.
Veitt verða 1., 2. og 3. verðlaun og jafnframt verður
svigrúm til innkaupa á athyglisverðum tillögum.
Verið er að skipa dómnefnd um samkeppnina. Gert
er ráð fyrir að skilafrestur á verkefnum verði fram í
miðjan mars á næstaári. Dómnefndin mun setja nán-
ari reglur um tilhögun keppninnar og verða þær aug-
lýstar nú í haust.
46