AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 69
fjallað um þau í hópi kennara og nemenda. Að loknu
námskeiðinu er gefinn út vandaður bæklingur með
Ijósmyndum af verkunum ásamt skýringum.
Á fundinum í Tampere var þess farið á leit við okkur
að ÍSARK taki að sér að halda slíkt námskeið.
ÍSARK er meðlimur í Urban Studies and Architec-
ture Seminar (Organization for the Advancement of
International Higher Education in Architecture) og
eru í undirbúningi nemendaskipti í samvinnu við þá
stofnun á næstu árum.
Markmið stjórnar ÍSARK með því að efna til sumar-
námskeiða er að leggja grunninn að frekari kennslu
í arkitektúr á íslandi og koma á samskiptum við
erlendar menntastofnanir, samtök og einstaklinga.
Árangur þessara tveggja sumarnámskeiða sem nú
er lokið lofar góðu og er hér um raunverulegan vísi
að kennslu í arkitektúr að ræða.
Stefnt er að því að sumarnámskeiðin verði árviss
þáttur í starfi ÍSARK en einnig er unnið að því að
hefja áfangakennslu í arkitektúr í samvinnu við er-
lenda arkitektaskóla og yrði þá fyrst framan af unnt
að stunda hér nám í eitt til tvö ár.
Umsagnir erlendra kennara á námskeiðunum hafa
verið mjög hvetjandi og mæla þeir með áframhald-
andi starfsemi í svipaðri mynd. Mjög mikill styrkur
fyrir okkur er í umsögn í bréfi, sem Juhani Pallasmaa,
forstöðumaður arkitektadeildar Tækniskólans í Hels-
inki og leiðbeinandi á sumarnámskeiði ÍSARK í ár,
skrifar Norrænu ráðherranefndinni að loknu nám-
skeiðinu þar sem hann ber lof á framkvæmd nám-
skeiðsins og mælir með því að Norræna ráðherra-
nefndin veiti frekari styrki til sumarnámskeiða ÍSARK.
í bréfi Pallasmaa er einnig að finna ráðleggingar um
uppbyggingu kennslu f arkitektúr á íslandi í samvinnu
við aðra arkitektaskóla.
Stofnanir eins og Nordplus, Erasmus o.fl. byggja
starfsemi sína á samstarfi háskóla margra landa og
gera þannig nemendum kleift með samræmdri
námsskrá að stunda nám í mörgum löndum á náms-
tímanum. Grundvöllur að kennslu í arkitektúrá íslandi
gæti byggst á slíku samstarfi.
Stjórn ÍSARK vill stuðla að þvf, að kennsla í arkitektúr
hefjist þegar innan veggja nýstofnaðs Listaháskóla
íslands og er það í samræmi við viljayfirlýsingu í
reglugerð um stofnun skólans. Innan vébanda ÍSARK
er nú unnið að því að móta raunhæfa stefnu um
kennslu í arkitektúr.
Af framansögðu er Ijóst að í sumarnámskeiðum
ÍSARK er sá vaxtarsproti sem getur með eðlilegum
FILL
Önnur verðlaun. Guðrún Sigurðardóttir
frá París.
hætti stuðlað aðþví, að hér geti hafist regluleg
áfangakennsla í arkitektúr. Það er því mikilvægt að
hlúð sé að honum svo hann fái vaxið.
Með góðri hjálp hefur okkur tekist að standa undir
öllum kostnaði við sumarnámskeiðin, en Ijóst er að
ef tryggja á framhaldandi starf þá er nauðsynlegt að
til komi föst fjárframlög rfkisins til þess að tryggja
markvissa starfsemi svo að við stöndum ekki frammi
fyrir óyfirstíganlegum óvissuþáttum varðandi rekstur
sumarnámskeiðanna. Með árvissum fjárframlögum
ríkisins og stuðningi frá Nordplus, Erasmusi og USA-
námskeiðunum eru stoðir undir sumarnámskeiði
okkar tryggar. Rétt er að benda á, að með kennslu á
þeim grundvelli sem við viljum byggja á gætu 4 til 5
arkitektar verið í fullu starfi við stjórnun og kennslu
og allt bendir til þess að slík kennsla í samvinnu við
erlendar menntastofnanir gæti orðið fjárhagslega
arðbær.
Við teljum mjög mikilvægt, að stjórnvöld taki vel í
málaleitan okkar enda löngu orðið tímabært að hefja
hér kennslu í arkitektúr. Slík kennsla yrði ekki ein-
göngu mikilvæg fyrir nemendur heldur einnig fyrir
starfandi arkitekta.
Kennsla í arkitektúr myndi stuðla að framförum, al-
mennri þekkingu og kynningu á byggingarlist og með
arkitektaskóla yrði rennt tryggari stoðum undir betri
samvinnu við fulltrúa stjórnsýslu. ■
67