AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 41
BREMEN: TVÆR TILRAUNIR í
UMFERÐAR OG UMHVERFISMÁLUM
IBrimaborg (Bremen) í Þýskalandi sem er borg
meö um 600 þúsund íbúa eru tvær merkilegar
tilraunir í gangi, sem báöar tengjast einkabíln-
um og tilraunum til aö minnka notkun hans. Auk
þess er veriö aö byggja upp kerfi fyrir létta spor-
vagna í borginni.
SAMNOT AF BIFREIÐUM („Auto sharing”).
í evrópskum borgum hafa á seinustu árum veriö
stofnuö félög fólks sem vill hafa aögang aö bíl án
þess aö eiga einkabíl sjálft. Þessi félög eru rekin af
áhugafólki um minni notkun einkabifreiöa án ágóða.
Fyrstu félögin voru stofnuð í Sviss fyrir um áratug og
nú hafa verið stofnuð Evrópusamtök slíkra félaga
(European Car Sharing, ICS).
í Bremen í Þýskalandi var slíkt félag stofnað fyrir 5
árum. Meölimir eru um 600 og hafa þeir afnot af 40
bílum, sem staðsettir eru á 16 stöðum
í borginni. Félagsmenn fá kort sem
stimplar inn tíma þegar þeir sækja og
skila bíl og færist það beint inn á reikn-
ing þeirra. í Bremen er kerfið rekiö í
samvinnu viö leigubifreiðafélag (tölvu-
kerfið).
Innritunargjald í félaginu í Bremen er
20 þús. krónur og jafnframt er greitt 30
þús. króna tryggingagjald sem er end-
urgreitt þegar einstaklingur hættir í
félaginu. Maki eöa annar í fjölskyldu
getur fengið aukakort til afnota af bifreið
fyrir 10 þús. krónur.
Fast mánaðargjald er 1 þús. krónur og
jafnframt greiöa notendur akstursgjald
á km. sem ræöst af stærð bílsins og
hve lengi hann er notaöur.
Samkvæmt útreikningum félagsins í
Bremen er helmingi ódýrara fyrir ein-
stakling sem notar einkabíl sem sam-
svarar 500 km akstri á mánuöi aö vera
í félaginu en reka 3 ára gamlan, meðal-
stóran einkabíl. Þaö kostar 30 þús. krónur á mánuði
að reka einkabíl og 15 þús. krónur á mánuöi kosta
samnot af bíl.
Þetta verkefni var í upphafi styrkt af borgaryfirvöld-
um í Bremen meö eftirfarandi hætti:
1. Þróun á sérstöku hugbúnaðarkerfi.
2. Kostnaöur viö fyrstu áróðursherferð.
3. Laun framkvæmdastjóra í tvö ár.
4. Uppsetning þjónustutækja á bílastæðum.
Auk þess hefur háskólinn í Bremen stutt rannsóknir
á þessu sviði og Evrópubandalagið stutt samkeyrslu
(ride/share) að þjónustustöðvum. Um þessar mundir
er verið að stofna fyrirtæki um sameiginleg not af
bifreiðum um alla Evrópu, t.d. í Skotlandi og Svíþjóð,
og einnig í Kanada.
39
BJARNI REYNARSSON, SKIPULAGSFRÆÐINGUR, BORGARSKIPULAGI REYKJAVÍKUR