AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 57
Hornvörpun, „upplýsingabyggingin".
jarðhæð „hellunnar" er að finna sérstæða lifandi
upplýsingamiðstöð - miðlunargötu nærsvæðisins
(Infothek, Literathek, Novithek, Glossothek, Hobby-
thek, Phonothek, Munsterthek, Lusothek). Hérerum
að ræða „upplýsingasúpermarkað" sem er aðskilinn
frá miðsvæði með BúchereigaBe. Tenging milli þess-
ara tveggja svæða er með brú á annarri hæð og á
henni er að finna leiðbeiningastöð (sem er
sameiginleg bæói fyrir „hellu“ og „skip". Þessir hlutar
byggingarinnar tengjast einnig í kjallara um hljóð-
og barnabókasafn.
Kaffistofa, sýningar- og lessalur fyrir dagblöð eru í
eftirlitslausu svæði við inngang „hellunnar". Þar fyrir
ofan eru skrifstofur á tveimur hæðum.
UPPBYGGING OG EFNISVAL
Þar sem byggingin er skorin í tvennt með Búcher-
eigaBe er hliðunum lokað aftur með tveimur hallandi
veggjum með koparkæðningu. (Þetta er ríkjandi
formhugmynd bókasafnsins). Stigar eru undir
þessum veggjum, bæði í „hellu" og „skipi", og fellur
Ijósið niður innri hlið þeirra. Glerrúður fyrir neþan
þessa veggi gera alla jarðhæðina sýnilega fyrir fólk
sem þarna á leið um.“ ■
55