AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 19

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 19
Mynd 4. BML steypuseigjumælir með fylgihlutum. Unnt er að mæla flæðieiginleika (viscosity) steypu í mælinum, en hann er framleiddur hérlendis fyrir alþjóðamarkað. landi fyrir alþjóðamarkað og er sérþekking á sviðinu við Rb meiri en víðast hvar. Tæki af þessu tagi nýtist vel við val íblöndunarefna til þess að ná fram séreigin- leikum í steypunni, t.d. við framleiðslu hástyrkleika- steypu. Notkun þess var grundvöllur árangurs og jafnrar framleiðslu við gerð steypuþekju á hafnargarð í Hafnarfirði fyrir tveimur árum en þar tókst að fram- leiða sterkasta steypta mannvirkið í heiminum til þessa. Mynd 4 sýnir BML steypuseigjumælinn (viscometer). LOKAORÐ Hér hefur verið drepið á nokkur svið þar sem sér- þekking á alþjóðamælikvarða er fyrir hendi við Rb . Ýmislegt fleira mætti tína til en hér verður látið gott heita að sinni. Rétt er að geta þess að þekking á ofangreindum sviðum hefur í ýmsum tilvikum fengist í gegnum rannsóknaverkefni, sem styrkt hafa verið af Rannsóknasjóði og Steinsteypunefnd, en hún var stofnuð 1965 til þess að vinna gegn grotnun í stein- steypu. ■ Arkitektar - verkfræðingar - tæknifræðingar Sífellt fleiri sjálfstætt starfandi einstaklingar hafa uppgötvað kosti þess að sameina heimili og vinnustað: tímaspamað og peningaspamað. Til sölu er glæsileg 1922 á tveim hæðum í nýlegu húsi í miðborg Reykjavíkur. Stórar stofur, 3 svefnherbergi, björt og góð vinnuaðstaða með mikill lofthæð á efri hæð, gufubað, svalir í tvær áttir, góðar geymslur í kjallara. Einkabflastæði fylgir. Stutt í alla þjónustu. Verð: 13,5 millj. kr. Góð lán áhvflandi. Upplýsingar í símum 562 0701 og 562 0702 17

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.