AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 21

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 21
út. Útboðsgögnin eru síðan notuð sem vinnulýsing og áætlun fyrir verkið. Það má skipta lagningu strengsins í þrjá meginþætti, það er: Lagningu innanbæjar, en vinna við lagningu strengja innanbæjar er oft töluverð þar sem í flestum tilfellum þarf að grafa skurði og leggja rör og brunna sem strengurinn er síðan dreginn í. Lagningu á lands- byggðinni og þar er algengast að strengir séu plægðir niður þar sem það er mögulegt og eru þeir þá plægðir niður á um 80 cm. dýpi. Þar sem þess er þörf þá eru sett hlífðarrör utan um strenginn og hefur það reynst mjög vel. Oft og tíðum eru samt ýmsar hindranir sem koma í veg fyrir að hægt sé að plægja strenginn niður og þarf þá ýmist að grafa eða jafnvel að sprengja klappir og annað sem á vegi verður. Lagningu sæstrengja en þeir hafa verið lagðir í ýmsa firði umhverfis landið og þar sem það hefur verið gert hafa verið settir 2 strengir í hvern fjörð þannig að til er varaleið yfir fjörðinn ef annar strengurinn bilar eða skemmist. Einnig hefur Póstur og sími tekið þátt í lagningu á Cantat-3, sæstreng sem liggurfrá Kanadatil Evrópu með viðkomu á íslandi, og hefur sá strengur gjör- breytt möguleikum okkar til alþjóðasamskipta. Þar sem lagning Ijósleiðarans hefur að mestu leyti verið í höndum verktaka þá hefur Póstur og sími haft mjög náið eftirlit með framkvæmdum á hverjum stað og eru fulltrúarfrá P&S sem fylgjast með hverju verki. Sjá þeir til þess að farið sé eftir útboðslýsingu og er mikil áhersla lögð á að frágangur á jarðvegi sé góður eftir að búið erað leggja strenginn. Haldnireru fundir með reglulegu millibili þar sem farið er yfir stöðu mála, árangur og annað sem tengist lagningunni og hefur þetta fyrirkomulag reynst mjög vel. Þegar lagningu strengsins er lokið taka starfsmenn Pósts og síma aftur við verkinu og sjá um tengingar og annan frágang. P&S hefur yfir að ráða mönnum sem eru sérhæfðir í tengingum og mælingum á Ijós- leiðurum og hefur verið haldið uppi háum kröfum á öllu sem við kemur þeim þáttum. Mjög sérhæfð tæki eru notuð við tengingar og mælingar á Ijósleiðaranum og er Ijósleiðaradeildin eini aðilinn hér á landi sem hefur yfir slíkum búnaði að ráða. Af þeim ástæðum hefur P&S séð um lagningu og tengingu á Ijósleið- urum sem sérverkefni fyrir ýmsa aðila, eins og Lands- virkjun, Háskóla íslands, Stöð 2 og fleiri. ■ 19

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.