AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 22

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 22
HELGI HAFLIÐASON, ARKITEKT ER ÞEKKING OKKAR I BYGGINGAR- IÐNAÐI (GJALD)EYRISVIRÐI? Spurningar af þessu tagi hafa oft komið fram og er þá oftast átt við það hvort við getum selt eitthvað úr landi gegn gjaldi. f hugum margra þarf það sem selt er helst að vera eitthvað áþreifanlegt og endurgjaldið að koma tiltölulega fljótt. Hugvit og þekking á ýmsum sviðum eru ekki áþreif- anleg fyrirbæri og mörgum gengur illa að skilja að borga þurfi fyrir slíkt. Sumum finnst að hugvitið sé aðallega í öðrum löndum og við ættum fremur að einbeita okkur að gjaldeyrisöflun með sölu á því sem mokað er upp úr sjónum í sem allra mestu magni. Sem betur fer er slíkur hugsunarháttur á undanhaldi og menn hafa a.m.k. skynjað þörfina fyrir hugvit og þekkingu á öllum stigum framleiðsluferils vöru, þ.e. allt frá undirbúningi og þar til varan er komin til neyt- andans. Ef spurt er hvort þekking okkar í byggingariðnaði sé eitthvað meiri eða betri en annars staðar gerist væri líklegt að svarað verði að svo væri ekki því allt slíkt hefðum við þurft að læra af öðrum þjóðum sem kynnu allt miklu betur en við í þeim efnum. SKOÐUM ÞETTA ÖRLÍTIÐ NÁNAR Næstum allt sem við höfum lært af öðrum þjóðum höfum við orðið að laga að íslensk- umaðstæðum. Af því hefur skapast dýrmæt og einatt alltof dýrkeypt þekking. Nærtækt er að nefna steinsteypuna sem þjóðin hefur gert að aðalbyggingarefni sínu. Með undra- skjótum hætti tókst að finna ráð sem duga til að minnka alkalívirkni í steinsteypu niður fyrir hættumörk. Þrátt fyrir takmarkað fé til rannsókna hefur jafnframt verið hugað að ýmsum öðrum eiginleikum steypunnar, m.a. hefur tekist að búa til steinsteypu með styrk- leika langt fram yfir það sem þekkst hefur hingað til. Gerðar hafa verið tilraunir með húðunarefni sem fyllilega hafa staðist sam- jöfnuð við sambærileg efni erlendis frá. Einnig hefur hér verið þróað og smíðað tæki sem mælir styrkleika steypunnar áður en henni er rennt í mótin og er sala á því hafin erlendis. Víða um heim hafa rannsóknir Islendinga á steinsteypu vakið athygli. Þetta er lítið dæmi um hvers við erum megnug þegar þarf að fást við alvarlegt vandamál.Meir en 1000 ára búseta í þessu landi hefur kennt okkur að nýta kraft- ana á réttan hátt og standa saman sem einn maður þegar eitthvað bjátar á og eru þessir eiginleikar lík- lega orðnir hluti af þjóðareðlinu. Aftur á móti hættir okkur til að vanmeta nauðsyn á rannsóknum, verk- menntun og öðru sem leiðir til farsælli árangurs í framkvæmdum þegar til lengri tíma er litið. Enn bú- um við samt við mjög góða almenna menntun og verkþekking er líklega almennari en víðast hvar annars staðar. Það er einnig styrkur okkar að þekking í byggingariðnaði hefur borist hingað hvaðanæva úr veröldinni gagnstætt því sem gerist meðal stærri þjóða þar sem þekkingin er að mestum hluta heima- fengin. íslenskir arkitektar og margir verk- og tækni- menntaðir menn hafa stundað nám í ýmsum löndum og það veitir okkur þá sérstöðu að hér hefur safnast Myndin sýnir slagregnsskáp við Rb.en í greininni kemurfram að erlendar lausnir, einkum varðandi þéttingar, verður ætíð að aðlaga íslensku veðurfari. ► V 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.