AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 23

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 23
þekking og reynsla úr ólíkum áttum. Við ættum því öðrum fremur að vera hæf til að miðla þekkingu okkar og reynslu til annarra þjóða. Reyndar er þegar farið að selja þessa þekkingu úr landi í einhverjum mæli því íslensk verkfræði- og verk- takafyrirtæki hafa á undanförnum árum haslað sér völl á erlendum vettvangi þótt ekki fari mikið fyrir því í fjölmiðlum. Við getum veitt ráðgjöf og þjónustu við hvers konar húsbyggingar og einnig mannvirki af öðru tagi, eins og t.d. brýr og vegi. íslensk ferðakynningarrit eru full af myndum sem flestar eru teknar á einstökum góðviðrisdögum en það þyrfti ekki að skaða þá ímynd af landinu þótt við reyndum einnig að markaðssetja slæma veðrið og bjóða upp á prófanir á ýmsum byggingarefnum við óblítt veðurfar til samanburðar við prófanir í rannsókn- arstofum. Svona mætti lengi telja og má t.d. nefna að vart hefur orðið við eftirspurn eftir góðum torfhleðslumönnum erlendis. E.t.v. gefur það okkur tækifæri til að hug- leiða hversu langt við náðum til fullkomnunar við gerð íslenska torfbæjarins og nú fer hver að verða síðastur að halda þeirri kunnáttu við. Líklega hafa ekki margir áttað sig á því að vel hlaðinn torfveggur gat enst lengur og þurft minna viðhald en sumar byggingar nútímans. HVERNIG EIGUM VIÐ SVO AÐ KOMA ÞESSARI ÞEKKINGU Á FRAMFÆRI? Mikill fjöldi íslendinga er nú víða um heim við þróunar- aðstoð og markaðsöflun fyrir íslenskar vörur, aðallega sjávarafurðir. Mikilvægt er að fá þetta fólk til sam- starfs á víðtækari grundvelli, bæði við upplýsinga- öflun og upplýsingamiðlun vegna annarra greina en þeirra sem það er sérstaklega að fást við. Margir þessara manna eru í góðu sambandi við áhrifamikið fólk og eru fljótir að sjá hvar kostur er á viðskiptum. Allir vita að þegar samband er komið á í einni við- skiptagrein er mun auðveldara að bæta annarri við heldur en að byrja frá grunni. Við eigum líka fjölda manna sem hafa borið hróður landsins um víða veröld á sviði lista, vísinda og íþrótta. Margir íslendingar starfa í öðrum löndum og eru orðnir rótgrónir þar. Sama er að segja um náms- menn. Allt þetta fólk hefur öðlast mikilvæga reynslu af dvöl sinni erlendis og myndað tengsl sem geta reynst gagnleg. Það gæti veitt okkur mikilsverðar upplýsingar og komið boðum til skila á réttum stöð- um ef vel er á málum haldið en til þess þarf að fræða það um hvað við höfum upp á að bjóða. Margir íslendingar hafa numið markaðsfræði og aðrar skyldar greinar og öðlast talsverða reynslu í þeim. Slíkt fólk á að nota til þess að koma virku skipu- lagi á þessi mál. Ef ekki eru notaðir starfskraftar þessa fólks er verið að sóa verðmætum og glata þeirri fjárfestingu sem menntun þess er. Nefna má dæmi um það hvernig viðskiptatengsl geta þróast: í tilteknu landi eða landssvæði standa yfir tilraunir í fiskveiðum og úrvinnslu sjávarafla með að- stoð íslenskra ráðgjafa. Ef þær takast vel þarf að smíða hentug veiðiskip, reisa hús yfir framleiðsluna og starfsfólkið, útvega veiðarfæri og annan búnað, ílát fyrir aflann, hlífðarfatnað og svona mætti lengi telja. Á flestöllum sviðum gætum við boðið okkur fram til þjónustu. Það ætti að vera augljóst að stofna þurfi til samvinnu um útflutning og markaðsöflun erlendis á víðtækum grunni. Ekki er lengur hagkvæmt að hvervinni ísinni grein án tengsla við aðra. Afmarka á heppileg mark- aðssvæði og gera um þau heildstæðar áætlanir. Markaðssóknin ætti að byggjast á greiningu þarfa ásamt skipulegum hugmyndum um uppfyllingu þeirra. Auka verður grunnrannsóknir í byggingariðn- aði og leggja áherslu á þætti sem tengjast útflutningi á byggingarstarfsemi o.s.frv. Koma á upplýsingum á framfæri eftir þeim boðleiðum sem tækni nútímans leyfir. Ef vel tekst til treystir þetta þann þekkingar- grunn sem við eigum heima fyrir og það gerir okkur kleiftað náenn betri árangri, bæði heimaog erlendis. Við getum því borið höfuðið hátt og megum vel trúa því að framtíðin verði okkur sæmilega björt. ■ 21

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.