AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 25

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 25
einungis notaðar á íslandi við vinnslu jarðhita, en nú eru ýmsir aðrir farnir að nota þessa vinnsluaðferð. Með þvl að nota djúpdælur við vinnslu á heitu vatni á lághitasvæðum má auka orkuvinnslu verulega mið- að við sjálfrennsli úr borholum. Þessi munur kemur greinilega fram á mynd 2 sem sýnir vinnslu sögujarð- hitasvæðisins í Laugarnesi. Vinnsla hófst á þessu svæði árið 1930 og var í byrjun notast við sjálfrennsli úrborholum. Síðan 1960-1965 hafa djúpdælur verið notaðar við vinnsluna og hefur orkuvinnslan marg- faldast eins og myndin sýnir. íslensku hitaveiturnar sem nýta jarðhita eru yfirleitt tæknilega mjög vel þróaðar. Séreinkenni á íslenskum hitaveitum eru t.d. þau að lægra hitastig er oft á þvt vatni sem notað er til upphitunar en almennt gerist í hitaveitum erlendis. Stýrikerfi hitaveitna og stýring á upphitun einstakra húsa er einnig með því besta sem gerist. Einangrunartækni er á mjög háu stigi og heitt vatn er flutt lengri vegalengdir á íslandi en almennt gerist annars staðar. Hitaveitulögninfrá Nesjavöllum til Reykjavíkur er þekkt meðal erlendra jarðhitamann sem verkfræðilegt undur. íslendingar hafa einnig verið í fararbroddi I samnýtingu jarðhita, en það kallast samnýting þegar jarðhiti úr einu og sama jarð- hitasvæði er notaður í fleiri en einum tilgangi. í Svartsengi er jarðhitinn notaður bæði til þess að framleiða raforku og til þess að framleiða hitaveitu- vatn fyrir þéttbýli á Suðurnesjum. Með samnýtingu jarðhita fæst mun betri nýtni á jarðhitaorkunni en þegar notkunarsviðið er aðeins eitt. Samnýting jarð- hita er einnig fyrirhuguð í Nesjavallavirkjun, þó raf- orkuvinnsla sé ekki hafin þar enn. í nútímaþjóðfélagi skiptir afhendingaröryggi orkunnar miklu máli. Ekki þarf aðeins að tryggja það að næg orka sé fyrir hendi í dag og á morgun heldur þurfa orkufyrirtækin að vita hve mikil orka er fyrir hendi eftir fimm eða tíu ár til þess að þau geti gert viðeig- andi rástafanir í tíma. Fylgjast þarf vel með vinnslu og viðbrögðum jarðhitakerfanna og sjá fyrir hvaða breytingar muni verða í framtíðinni. Þessi starfsemi hefur einnig gengið ágætlega á íslandi og ekki hefur komið til þess að hætta hafi þurft við nýtingu á neinu jarðhitakerfi, sem tekið hefur verið í notkun. FJÁRHAGSLEG HLIÐ JARÐHITANÝTINGAR Það gefur auga leið að íslendingar hefðu ekki þróað jarðhitanýtingu eins langt og raun ber vitni nema af því að það hefur verið fjárhagslega hagkvæmt að fara þessa leið. Þar sem jarðhiti er fyrir hendi er upp- hitun með jarðhita ódýrari en upphitun með öðrum orkugjöfum. Þegar verð á olíu hækkaði í byrjun átt- unda áratugarins var gert átak í því að auka nýtingu jarðhita til húshitunar á íslandi og tók um tíu ár að auka jarðhitanotkunina úr 50% upp í 85% á kostnað upphitunar með olíu. Fjárhagslegur ávinningur af því að nota jarðhita í stað olíu til upphitunar er sýndur á mynd 3. Rauðu súlurnar sýna heildarkostnað notenda við að hita hús sín með jarðhita. Miðað er við verðlag á árinu 1994. Myndin nærtil þeirrahúsasem áhverjum ttma eru hituð með jarðhita. Grænu súlurnar sýna hins vegar hvað notendur hefðu þurft að greiða í upphitun ef hús þeirra hefðu verið hituð með olíu. í öllum tilvikum er það meira en tvisvar sinnum dýrara að kynda hús með olíu en jarðhita og á tímabilinu 1973 -1985 er það mörgum sinnum dýrara. Munurinn á grænu og rauðu súlunum á mynd 3 Kostnaður notenda við upphitun húsa sem tengd eru jarðhita á hverjum tíma 25- Laugarnes -100 -50 o 50 o 100 O n </) £ 150 03 > 200 250 I — — — 1 r - Vatnsborð Vinnsla S jálfrenns li 30 35 40 45 50 55 60 65 70 75 80 85 90 Ár 23

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.