AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 30

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 30
víðtæk könnun á ferðavenjum Reykvíkinga síðan þá. Við gerð umferðarspár er reiknilíkanið fyrst matað með eftirfarandi upplýsingum: 1. Áætlunum sveitarfélaganna á Höfuðborgarsvæð- inu um íbúafjölda og landnotkun eftir svæðum til næstu 20 ára (svokallaðar skipulagstölur). 2. Áætlunum um ferðavenjur sem byggjast m.a. á upplýsingum úr umferðarkönnuninni frá 1962 og áætlaðri ferðatíðni (ferðir/íbúa/sólarhring) sem aftur byggist á spá um fjölgun einkabíla á íbúa og orku verði. Reiknilíkanið meltir þessar upplýsingar og gef- ur niðurstöður í svokölluðum ferðatíðnitöflum. Þá er reiknilíkanið matað upplýsingum um gatnakerfið, bæði um núverandi gatnakerfi og áætlað gatnakerfi í nýjum borgarhlutum. Meginniðurstöður reiknilíkans- ins eru síðan aukið álag á gatnakerfið eða aukin ferðafjöldi vegna nýrrar byggðar og aukning í eknum kílómetrum. Niðurstöður reiknilíkansins eru síðan not- aðar við gerð framkvæmdaáætlunar um hvar sé þörf á að breikka stofnbraut, bæta við nýrri eða byggja mislæg gatnamót. Áhrif hverrar framkvæmdar á ekna vegalengd og ökustundafjölda og arðsemi hennar er síðan metin útfrá þessum forsendum. Um það skai ekki deilt að brýn nauðsyn er að gera umferðarspá svo einhverjar hugmyndir fáist um þörfi- na fyrir ný umferðarmannvirki. Hins vegar verður að varast að líta á niðurstöður reiknilíkansins sem algild- an sannleika. Hafa verður í huga að megin upplýs- ingarnar sem reiknilíkanið er matað með eru byggðar á áætlunum. Sérstaklega á þetta við um skipulags- tölurnar svokölluðu, þ.e. áætlunum sveitarfélaganna um landnotkun og íbúafjölda á nýjum byggðasvæð- um og raunar í eldri byggð einnig. Þær byggjast að stórum hluta á pólitlskum ákvörðunum yfirvalda í sveitarfélögunum og ákvarðanirnar eru að sjálfsögðu breytingum háðar.í þessu sambandi mætti reyna að mata reiknilíkanið með nokkrum útgáfum af skipu- lagstölum og kanna þannig áhrif mismunandi land- notkunar á umferðarmagn. Eftir því sem umferðarspáin gerir ráð meiri umferð þeim mun meiri er þörfin á einstökum gatnafram- kvæmdum eða m.ö.o. auðveldar er að sýna fram arð- semi einstakra framkvæmda. Umferðarspáin sýnir venjulega að það er gífurleg eftirspurn eftir aukinni þjónustu við einkabílinn. Líktog umferðarspáin byggjast arðsemisútreikningar gatnaframkvæmda á mörgum gefnum forsendum (þ.á.m. niðurstöðum umferðarspárinnar).Arðsemi samgöngubóta byggist að jafnaði á eftirtöldu: 1. Færri umferðaróhöppum, t.d. vegna mislægra gatnamóta. 2. Lægri ökutækjakostnaði vegna hærri meðalhraða og jafnari hraða og oft og tíðum styttri vegalengda. 3. Auknum tímasparnaði ökumanna vegna styttri aksturstlma. Á móti þessum tekjuþáttum kemur stofn- og rekstr- arkostnaður vegna umferðarmannvirkisins. Annar kostnaður sem fylgir framkvæmdunum, sem oft er erfitt að meta tölulega, er látinn liggja milli hluta og sleppt I útreikningunum. Áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið, s.s. sjónræn áhrif, aukin mengun og ónæði, erfiðara aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og óbein áhrif á rekstur almennings- samgangna, eru allt kostnaðarþættir sem ekki eru Mynd 3. Vítahringur einkabílastefnunnar.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.