AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 46

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Blaðsíða 46
mýrinni við gamla miðbæ Reykjavíkur og verslunar- miðstöðina í Kringlunni og liggi síðan um miðbæi Kópavogs og Garðabæjar suður í miðbæ Hafnar- fjarðar. Staðarval Umferðarmiðstöðvarinnar, langt frá miðbæjarstarfsemi, skiptistöðvum almenningssam- gangna og annarri byggð orkar mjög tvímælis og góðra gjalda vert er að reyna að tengja hana betur þeirri byggð og því fólki sem hún á að þjóna. Við skipulag nútíma -verslunarhverfa í Evrópu er það víð- ast hvar grundvallaratriði að fólk geti komist auðveld- lega að þeim og frá með almenningsflutningatækjum. Á þessu er mikill misbrestur á höfuðborgarsvæðinu, en í hugmynd sinni reynir Magni að tengja saman helstu miðbæi á þessu svæði. Einnig leggur Magni til að byggt verði hótel í tengslum við Umferðarmið- stöðina. Lokaverkefni Magna Steindórssonar er áhugavert um margt. Þótt ekki sé hægt að krefjast þess að það sé jafnraunhæft og fullunnin tillaga ætti það samt að vekja okkurtil umhugsunar um margt. Það er löngu vitað að talsverður hluti fólks hvorki get- ur né vill eiga og reka einkabíl enda er kostnaður við slíkan rekstur nú orðinn jafnmikill eða meiri en hús- næðiskostnaður venjulegrar fjölskyldu.Það er líka vit- að að ef við viljum að almenningsflutningar verði hag- kvæmur kostur sem geti keppt við einkabílinn þá þarf helst að skipuleggja byggð frá upphafi með það t huga. Við vitum að bílisminn á höfuðborgarsvæðinu kostar okkur marga milljarða á ári sem almenningur á þessu svæði þarf að greiða árlega með gjaldeyri. Svona almenningslest mætti líka smíða að talsverðu leyti innanlands.Við eigum nóg af atvinnulausum járn- smiðum og bifreiðasmiðum sem gætu lagt gjörva hönd að því verki. Auk þess væri hægt að nýta inn- lenda orku til þess að knýja lestina áfram og við það sparaðist dýrmætur gjaldeyrir. Ef taka má mark á reynslu annarra þjóða þá kemur stuðningur við svona hugmyndir ekki frá þeim sem eiga hagsmuna að gæta af áframhaldandi bílisma, jafnvel þótt hægt sé að sýna fram á umtalsverðan sparnað fyrir þjóðarbúið.Til þess þarf ábyrga og víð- sýna stjórnmálamenn. Hvort sem við eigum þá eða ekki ætti að vera sjálfsagt að fylgjast vel með þróun almenningslesta og kanna hvort þessi kostur geti hentað okkur nú eða í fyrirsjáanlegri framtíð. í skipulagi byggðar er það af mörgum talin skynsam- leg ráðstöfun að skilja um 20% af landi eftir óbyggt fyrir ófyrirséðar framtíðarþarfir. Sá tími kann að koma að börnin okkar eða barnabörnin yrðu okkur þakklát fyrir að hafa skilið eftir óbyggða ræmu milli helstu þéttbýliskjarna á höfuðborgarsvæðinu - og jafnvel suður til Keflavíkur - fyrir almenningslest. Það er miklu ódýrari kostur en að þurfa að rífa mikinn fjölda mann- virkja til þess að byggja nauðsynlegt almennings- flutningakerfi. GÓ. ■ MÚLALUNDUR vinnustofa SÍBS Símar: 562-8450 og 568-8476 • Fax: 552-8819 Múlalundur er stærsti framleiðandi á lausblaðabókum á íslandi. Þar eru framleiddar lausblaðabækur af ýmsum gerðum og stærðum, allt eftir þínum óskum og þörfum. Við eigum jafnan á lager mikið úrval af jámum í bækurnar ýmist með tveimur eða fjómm hringjum. Smekklegar lausblaðabækur eru hentugar fyrir: Námskeið - Gagnasöfn - Vörulista og handbækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.