AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 58
SKÚLI H. NORÐDAHL, ARKITEKT HANNES K R. DAVÍÐSSON i Gengnir eru nokkrir frum- herjar úr íslenskri arki- tektastétt án þess aö gerðar hafi verið til- raunir til að meta störf þeirra. Hvert var framlag hvers og eins til þró- unar byggingarlistar í landinu? Hvaða áhrif höfðu þeir á þróun byggingar tækninnar? Hvernig mótuðu þeir við- horf almennings í fagurfræðilegum efn- um? Með hvaða hætti brugðust þeir við breytingum í hýbýlaháttum? Hvernig og hvaða áhrif höfðu þeir á mótun íbúða almennings í umbrotum nýrra lífshátta við vaxandi þéttbýlismyndun nýrra atvinnuhátta? Svona má lengi spyrja án þess að fá viðhlítandi svör vegna þeirrar vanrækslu að leita ekki eftir svörum þeirra, sem gengnir eru, um ætlanir þeirra og viðhorf til verkefnanna, sem þeir leystu úr. Sá er síðast kvaddi starfsstéttina er Hannes Kr. Davíðsson er lést 29. apríl sl.. Svo ófullkomin sem þessi skrif hljóta að vera, skal gerð tilraun til að leita svara Hannesar við sumu af því, sem hér var spurt um. Um sumt eru allgóðar heimildir í skrifum Hannesar, um annað þarf að skoða nokkur verk frá hendi hans. Má þar, að mati þess er þetta skrifar, glöggt sjá við- horf hans til að hafa áhrif á þróunina. Fyrir allmörgum árum vakti Hannes athygli mína á því fyrirbæri, að sá arkitekt, sem hvað mest áhrif hafði á mótun hugmyndafræði þá, sem í seinni tíð hefur kallast „modernismi" eða nútímastefna í byggingar- listinni, hvarf í skugga hávaðasamari forystumanna. Þetta var austurríski arkitektinn Adolf Loos (1870- 1933). Framan af starfsferli sínum ritaði hann og gaf út blöð þar sem hann rökstuddi og skýrði grundvöll að sannri byggingarlist. Hann var mjög skýr í hugs- un, framsýnn og bjó yfir sterkri siðgæðisvitund. Hann hvikaði ekki frá að fylgja eftir skoðunum sínum, þó að það einangraði hann í samfélagi stéttarinnar. Því segi ég frá þessu hér að Hannes kynnti sér skrif þessi og verk Adolfs Loos og þótti mikið koma til þessa raunverulega frumkvöðuls „modernismans". Þó að hálf öld skildi að þessa tvo menn sýnist mér eðliseiginleikar þeirra hinir sömu: íhygli, skýr rökræn hugsun, sterk sið- ferðiskennd, framsýni og hugrekki til að fylgja eftir sannfæringu sinni. Hér væri tilefni til að vitna í skrif Adolfs Loos en skal látið ógert. Þess í stað skal vitnað í viðtal við Hannes um afstöðu hans til starfsins, stéttarfélaganna og samfélagsins. Sem stéttvís félags- maður segir hann: „Ég tel að það hafi verið óþurftarspor, sem stigið var, þegar farið var að skipta félaginu upp í launþega og vinnuveitendur, enda sýndi það sig að forvígismenn skiptingarinnar voru fljótir að gufa upp úr röðum verkalýðsins". Þetta hefur orðið stéttinni til stórtjóns og bundið enda á þau samskipti félaganna að hittast og ræða verk sín og starfsbræðranna og leita„eðlilegra lausna á hönnun húsa“, eins og gerðist títt áður. Hannes segir í sama viðtali: „Tæknin ætti ekki að hindra mann, þeg- ar maður ræður við hana, en það er forsenda og þá getur hún orðið manni lyftistöng". Lokaorð Hannesar voru: „Arkitektar ættu að reyna að kryfja verkefnin til skilnings, þegar þau berast, og að kryfja eiginleika byggingarefnanna, svo að þau verði arkitektinum undirgefin til lausna. Ef þetta tekst, þá held ég að allt ætti að vera í lagi“. í umræðunni um modernisma-postmodernisma kemst Hannes svo að orði: „Menn geta ekki lifað í fortíðinni, ekki heldur þó þeir api eftir ýmsa hluti, „til- vitnanir" frá fyrri öldum, þeir skapa engin tengsl við fortíðina með því. Með því magna þeir bara umkomu- leysi sinnar samtíðar. En með því að kryfja eðli góðra verka og koma fram af hreinskilni við okkar eigin sam- tíð opnast leiðir til frjórra og góðra verka". í upphafi starfs hér heima lagði Hannes fram sinn skerf til umræðunnar um hýbýlakosti og gerð íbúðar- húsa með greinaskrifum um það efni. Eftir síðari heimsstyrjöldina rýmkaðist svo fjárhagur fólks að farið var að byggja stærri íbúðir en gert var á kreppuárum. í grundvallaratriðum gerðist það að herbergjatengsl héldust óbreytt frá smærri íbúðum en gangur, sem tengdi öll herbergi, óx á alla vegu svo að úr varð s.k. hol. Þetta hugsunar og hugmyndaleysi gagnrýndi i í 56

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.