AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 59

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 59
Úr stofu í húsi Gunnars Gunnarssonar skálds að Dyngjuvcgi 8, Rvk. Hannes í nokkrum greinum og vakti athygli á betri lausnum, sem einnig höfðu komið fram í húsbygg- ingum hér sem og annars staðar. í því sambandi gerði hann að umræðuefni almenna hýbýlahætti. Fyrsta íbúðarhúsið, sem hann lagði fyrir byggingar- nefnd, var á sinn hátt framlag til þeirrar umræðu. Sem starfsmaður hjá borginni fékk ég það verkefni að finna á þvf þá hnökra, sem réttlættu að hafna því. Þeir voru engir og þess vegna stendur þetta hús til samanburðar við hús þeirrar tegundar, sem hann hafði gagnrýnt. íbúðarhús Gunnars Gunnarssonar skálds ber merki skyldleika við hús Adolfs Loos með þeim hætti, sem Hannes nefnir í tilvitnuninni hér að framan: „með því að kryfja góð verk og koma fram af hreinskilni við okkar eigin samtíð". (Sá starfsháttur einkennir öll tök Hannesar á viðfangsefnum hans). Einfalt form hús- sins í samræmi við innra form rýmisins og glugga- setning samkvæmt eðli rýmisins, sem lýst er, er jafn- framt í jafnvægi við fletina, sem gluggarnir sitja í. Átta hæða hús við Ljósheima sker sig úr húsaröðinni. Það er ekki gert til að vera öðruvísi. íbúðirnar eru gegnumgangandi, þ.e. gluggareru í tvær áttir og gera auðvelt að viðra út. Jafnframt er auðvelt í svo háu húsi að eiga útgönguleið f gagnstæðar áttir, ef hætta steðjar að. Lausnin gefur útlitinu léttara yfir- bragð án tilgerðar. í viðureign sinni við hús rannsóknarstöðvar í veiru- fræðum að Keldum glímdi Hannes við að hafa stjórn á dagsbirtunni í rannsóknarstofunum. Teikning sýnir lausnina, sem hann valdi. Það réð svo húsforminu. Þar hannaði Hannes stiga, sem verkfræðingar gátu ekki reiknað, en hugboð og tilfinning hans fyrir eðli burðarþolsins gerði kleift að framkvæma þá hug- mynd. Viðureignin við dagsbirtuna var Hannesi mjög hugleikin. Þetta sést mjög greinilega í kirkjunni í Bjarnanesi. Endurskinsbirta í kórnum, þar sem dags- birtan berst inn um glugga ofan kirkjuskips og upp kórvegginn. Önnur dagsbirta kemur um gaflvegg andspænis kórnum og fellur inn aftan við söfnuðinn. Sparisjóður Hafnarfjarðar. Eitt þeira húsa, sem Hannes teiknaði með frjálsu innréttingafyrirkomulagi. Gólf- plötur eru úr strengjasteypu með stóru hafi og án ber- andi súlna er skerða gólfflötinn. Húsið er eitt hið fyrsta sem klætt er brenndum húðuðum leirflísum frá Höga- nes. Hús rannsóknarsstöðvar í veirufræðum að Keldum. í þann mund sem hann teiknaði kirkju þessa var víða um heim verið að fástvið bogaform og hvelfingar.Það reyndi Hannes við Bjarnaneskirkjuna og braut jafn- framt heildarformið, þannig að lofthæð var merkt fremst við gaflgluggann. Með því móti var þess að vænta að þar fengist nokkurt endurskin af loftflet- inum, sem hallaöist niður á við, þegarinnardró.lnnsta hlutann inn að kórnum reisti hann upp á móti birtunni í kórnum. 1 ip 1 .ij i í L i íi 57

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.