AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 66

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 66
UMRÆÐA Þrátt fyrir að umhverfisvandamál bæjarfélaganna tveggja séu ólík voru vinnuaðferðir bæjarfélaganna að ýmsu leyti svipuð. Bæði bæjarfélögin unnu að því markmiði að þróa opinbera umhverfisstefnu fyrir bæjarfélagið og vildu einnig bæta samstarf meðal starfsmanna bæjarins á markvissan hátt. Eftir árs- vinnu að undirbúningi umhverfisskipulags fyrir Es- bjerg Kommune jókst vitund og áhugi starfsmanna á umhverfismálum og ennfremur batnaði samstarf ýmissa deilda bæjarfélagsins, þar sem starfsfólk hitt- ist reglulega til þess að ræða undirbúning starfsins. Við skipulag undirbúningsvinnu Local Agenda 21 í Newcastle var áhersla lögð á þverfaglega vinnu og hópverkefni, sem voru í meginatriðum byggð á sömu áherslum og starfið í Danmörku, þ.e. leitast var við að nálgast umhverfismál frá mörgum hliðum með samvinnu einstakra starfsmanna og bæjarfélags- deilda. Umhverfismál eru í auknum mæli þáttur í alþjóðlegri samvinnu og eru líkleg að verða í fyrirrúmi í samstarfi EFTA og Evrópusambandsins í framtíðinni. Þrátt fyrir að áhrifa löggjafar Evrópusambandsins verði enn lítið vart á íslandi og að framtíð EFTA og EES- sam- ningsins í núverandi formi sé óljós, hefur Island nálgast Evrópusambandið. Evrópusambandið hefur nú þegar haft áhrif á framkvæmdir umhverfismála á íslandi með lögum um Umhverfismat á framkvæmdum, sem er mikilvægur þáttur í umhverfislöggjöf sambandsins. Ef litið er á þróun umhverfismála meðal aðildarlanda Evrópusambandsins, hefur staða þeirra breyst frá því að Evrópusamband- ið hafi einungis áhrif með nýjum tilskipunum um lagasetningu innan landanna til þess að það hafi bein áhrif á framkvæmd umhverfis- mála. í stað þess að löggjöf komi ofan frá er hvatt til þess að frumkvæði komi frá bæjar- félögunum sjálfum, íbúum og félagasamtökum, er það í samræmi við samþykkt alþjóða- ráðstefnunnar í Ríó um undirbúning Local Agenda 21 áætlananna. í umhverfisáætlunum eins og gerðar hafa verið í Esbjerg og Newcastle eru meginatriði sjálfbærrar þróunar samþætt annarri stefnu bæjarfélaganna og eru hluti af skipulagsstefnu bæjanna. íslensk bæjar- yfirvöld gætu nýtt sér slík dæmi um aðferðir til að auka samþættingu í samgöngumálum og skýra land- notkun og þróun þjónustukerfa. Vegna fámennis væru slíkir umhverfisuppdrættir í hverju sveitarfélagi ekki raunhæfur möguleiki, en sveitarfélög sem eiga við svipuð vandamál að stríða, svo, sem hraða uppbyggingu í ferðamannamálum, uppblástur og breytingu á meginatvinnuvegum, gætu undirbúið sameiginlega umhverfisuppdrætti. Gætu sllkir upp- drættir verið unnir í tengslum við undirbúning svæðisskipulags . Bæjarfélög gætu einnig í auknum mæli stefnt að því að leysa í sameiningu umhverfis- vandamál svo sem samgöngur, skólp- og sorpmál. Það er þó Ijóst, að áður en slík vinna getur hafist þyrfti að vekja almenning til aukinnar vitundar um umhverfismál. Aukið upplýsingaflæði er nauðsynlegt og kynna þarf í auknum mæli stefnu stjórnarinnar í umhverfismálum og áhersluatriði hennar. Þannig mætti veita bæjarfélögum ramma til að styðjast við til að takast á við sín eigin umhverfisverkefni. ■ 64

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.