AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 68
c
Fyrstu verðlaun. Karolína Keyzer og Roger Spetz frá
Stokkhólmi.
Frakklandi, Noregi og Þýskalandi,4 Danir frá Kaup-
mannahöfn og Árósum,4 Finnar frá Helsinki, Tamp-
ere, Oulu og Vín, 2 Norðmenn frá Þrándheimi, 3 Svtar
frá Stokkhólmi, 1 Þjóðverji frá Berlín.
Farnar voru tvær 2ja daga ferðir í tengslum við verk-
efni námskeiðsins. Fyrri ferðin var farin um Suður-
land austur I Skaftafell þar sem Þjóðgarðurinn var
skoðaður I fylgd Stefáns Benediktssonar þjóðgarðs-
varðar. Seinni ferðin var farin út á Snæfellsnes og
gengið á Snæfellsjökul, staðhættir kannaðir, fornar
minjar skoðaðar og fróður leiðsögumaður, Skúli Alex-
andersson, fyrrverandi alþingismaður, rakti sögu
byggðarinnar. Ferðirnar skipulagði Sigrún Birgis-
dóttir. Verkefni námskeiðsins voru tvö. Hið fyrra var
undirbúningsverkefni, rýmismótun á söndunum við
Skaftafell. Nemendurfengustvið þettaverkefni fyrstu
viku námskeiðsins. Hið síðara, aðalverkefnið, var
ímynduð bygging, eins konar hlið eða ferðamanna-
miðstöð, sem þjóni ferðamönnum í fyrirhuguðum
þjóðgarði við rætur Snæfellsjökuls.
Nemendur unnu að verkefnum undir handleiðslu leið-
beinenda, I lok hverrar viku voru umræður og I lokin
voru verkin sett upp á sýningu og dómnefnd fjallaði
um þau og veitti verðlaun. í dómnefnd voru ,auk leið-
beinenda, formaður ÍSARK og Guðmundur Jónsson,
arkitekt frá Noregi. Verðlaun hlutu:
1. Karolina Keyzer og Roger Spetz frá Stokkhólmi -
$1000 + USA Institute Travel Grant $1000.
2. Guðrún Sigurðardóttir, íslensk, frá Frakklandi -
$500 +USA Institute Travel Grant $500.
3. Peter Hemmersen og Tom Nielsen frá Árósum -
$300 + USA Institute Travel Grant $1000.
Viðurkenningar hlutu (Honorary mention): Hilde
Therese Remoy og Axel Kristoffersen frá Þrándheimi
$100 +USA Institute Travel Grant $1000.
Laura Brax, finnsk, frá Vín $100 + USA InstituteTravel
Grant $500.
Ferðastyrkir (Travel Grant): Olga Guðrún Sig-
fúsdóttir, Islensk, og Birgit Hirschmann, þýsk, frá
Þýskalandi USA Institute Travel Grant $1000. Riitta
Juutilainen frá Tampere, USA Institute Travel Grant
$500.
Námskeiðinu var slitið við hátíðlega athöfn 30. júní
og var þá sýning á verkum nemenda opnuð I
Ásmundarsal. Sýningin stóð 13 vikur og er fyrirhugað
að senda hana til arkitektaskóla á Norðurlöndum, I
Englandi og I Bandaríkjunum.
Nú er unnið að vandaðri útgáfu Ijósmynda og texta
allra verkefna nemenda og er áætlað að því verki
verði lokið I október n.k. Stefnt er að því að undir-
búninguraðnæstasumarnámskeiði 1996 geti hafist
I október og að kynningarrit ásamt dagskrá verði sent
út I lok þessa árs. Kostnaður vegna námskeiðsins
er áætlaður um kr. 4.000.000,-. Norræni menningar-
sjóðurinn, Reykjavlkurborg, Menntamála-, Iðnaðar-
og Umhverfisráðuneyti, Húsnæðisstofnun ríkisinsog
Landsvirkjun auk nokkurra stofnana veittu styrki til
námskeiðsins.Námskeiðsgjöld nemenda og að-
gangseyrir að fyrirlestrum stóðu undir hluta kostn-
aðar. Fjárhagsstaða ÍSARK I lok námskeiðsins er já-
kvæð en endanlegir endurskoðaðir reikningar verða
tilbúnir í lok október n.k. Skólastjórn ISARK hefur
unnið allt sitt starf I sjálfboðavinnu, frá stofnun skól-
ans.
Formaður ÍSARK sótti Nordisk Arkitekturakademis
koordinatormede I Tampere I Finnlandi í vor, en það
er árlegur fundur fulltrúa arkitektaskólanna á Norður-
löndum. Þar gerði hann grein fyrir starfsemi ÍSARK,
sumarnámskeiðinu 1994og undirbúningi sumarnám-
skeiðsins 1995. Fulltrúarsýndustarfsemi ÍSARKmik-
inn áhuga og samstaða var um að efla tengsl og
styrkja starfsemi ÍSARK eftir föngum.
Samstarf norrænna arkitektaskóla er öflugt og er nú
unnið að því að hefja samvinnu við arkitektaskóla I
Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Á vegum Norrænu arkitektúrakademíunnar er efnt
til samvinnuverkefnis nemenda norrænna arkitekta-
skóla annað hvert ár, og hittast nemendahópar, sem
valdir hafa verið til að fást við verkefnið á vikunám-
skeiði (Workshop), þar sem verkefnum er skilað og
66