Bændablaðið - 04.04.2023, Page 1

Bændablaðið - 04.04.2023, Page 1
Tökustaðastjóri bankar upp á 4248 Ung börn eignuðust flugvél 38 Rækta ekki tilviljunargæðinga 7. tölublað 2023 ▯ Þriðjudagur 4. apríl ▯ Blað nr. 631 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Vikugamlir kjúklingar í uppeldi á Lambhaga í Ölfusi. Þrjú fyrirtæki standa að allri alifuglaframleiðslu hér á landi, á rúmlega 30 stöðum kringum landið. Umfang framleiðslunnar telur um 6 milljónir fugla á ári. Framleiðslan nam um 9.500 tonnum í fyrra. Kolefnisspor íslenskra kjúklinga er minna en flestra annarra dýrategunda til manneldis og kolefnisspor íslenskrar kjúklingaframleiðslu er langt fyrir neðan heimsmeðaltal. Allur úrgangur, eða hráefni, sem ekki er nýtt til manneldis, er notað sem áburður eða til landgræðslu. – Sjá nánar á bls. 20–21. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir Tveimur milljörðum króna varið í kornrækt Tveimur milljörðum króna verður varið á næstu fjórum árum til að hrinda aðgerðaráætlun um aukna kornrækt í framkvæmd samkvæmt nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Er það í takt við tillögur starfshóps matvælaráðherra frá Landbúnaðarháskólanum sem lagði meðal annars til árlega 500 milljóna króna úthlutun í framleiðslu- og fjárfestingastuðning til eflingar kornræktar. Samkvæmt markmiðum fjármálaáætlunarinnar verður miðað við að framleitt verði bygg á 7.000 hektara lands árið 2028. Í dag er flatarmál ræktarlands 3.156 hektarar. „Þetta eru afar ánægjulegar fréttir og frábært að heyra að vinnan skili sér alla leið en endi ekki ofan í skúffu. Mér er sagt að það sé mjög langt síðan viðlíka upphæð hafi verið sett í landbúnaðarmál að frumkvæði stjórnvalda sem ekki er ætluð til að slökkva elda heldur sækja fram á ný mið. Mér finnst þetta kristalla meðbyr með íslenskum landbúnaði og að nú sé lag að sækja fram í matvælaframleiðslu á breiðari grunni. Svandís og starfsfólk matvælaráðuneytisins sýndi fagmennsku í kringum þessa vinnu og eiga heiður skilið fyrir það,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjunkt og brautarstjóri búfræðibrautar hjá LbhÍ, en hann fór fyrir starfshópnum. Svandís Svavarsdóttir matvæla- ráðherra sagði á Búnaðarþingi að aðgerðaráætlunin sé metnaðarfull en raunhæf sóknaráætlun. „Áætlun um það hvernig íslenskur landbúnaður geti á þessari öld brauðfætt þjóðina í orðsins fyllstu merkingu. Við vitum að það tekur tíma að byggja þessa grein upp þar sem innviði skortir. Við munum ekki fá íslenskt bökunarhveiti í búðir næsta haust, en við munum komast þangað.“ Pálminn í höndum bænda Nú þegar fjármagn hefur verið tryggt segir Helgi Eyleifur að gera þurfi samning um plöntukynbætur svo vinna geti hafist af fullum þunga, en fyrir liggur boð sænska landbúnaðarsamvinnufélagsins Lantmännen um samstarf við að innleiða erfðamengjaúrval. „Í öðru lagi þurfa bændur nú að sameinast um rekstur þurrkstöðva, leggja til hlutafé og sækja um mótframlag til að reisa nýjar eða stækka nothæfar stöðvar, fjárfesta í flutningavögnum og eftir atvikum þreskivélum. Í framhaldinu geta bændur aukið við ræktun korns og fengið greiddan framleiðslutengdan stuðning. Pálminn verður fljótlega í höndum bænda og því er brýnt að þeir komi sér saman og búi til sínar áætlanir. Í þeim áætlunum er nauðsynlegt að horfa fram á veginn í uppbyggingu og ráðgera stækkun í áföngum, horfa til 5, 10, 20 og 30 ára. Okkar mat er að það sé mikilvægt að við sjáum færri en stærri stöðvar í framtíðinni,“ segir Helgi Eyleifur. Þá þurfi að skrifa góðar ræktunar- leiðbeiningar til bænda sem fyrst. „Í framhaldinu mætti svo halda áfram að vinna að þeim tillögum sem við í starfshópnum lögðum til en þær eru þrjátíu talsins og allar mikilvægir liðir í því að aðgerðaáætlunin takist að okkar mati. Væntanlega mun matvælaráðuneytið leiða næstu skref.“ Reisir haframyllu á Suðurlandi Örn Karlsson, kornræktandi á Sandhóli, stefnir að því að byggja haframyllu á Suðurlandi og leitar nú tilboða hjá framleiðendum í Finnlandi. Slíkur tækjabúnaður hefur ekki verið til hér á landi og því hefur þurft að verka íslenska hafrauppskeru í Danmörku. Mun væntanleg mylla geta afkastað 150–300 tonnum á klukkustund en Sandhólsbændur hafa framleitt um 200 tonn á ári, sem fer að mestu til framleiðslu á tröllhöfrum og haframjöli. „Bændur vilja auðvitað bara hafa virkan markað og með tilkomu svona myllu til landsins – og svo betri stuðningi stjórnvalda – þá opnast tækifæri fyrir fleiri. Svo held ég að besta stuðningsfyrirkomulagið við þessa grein til uppbyggingar sé að koma á fjárfestingastyrkjum. Ekki að bæta við jarðræktarstyrkina, eða að styrkja land, heldur til uppbyggingar að megninu til,“ er haft eftir Erni í blaðinu. /ghp Sjá nánar á bls. 8. Búnaðarþing var haldið dagana 30.–31. mars sl. Starfsnefndir þingsins unnu þar að uppfærslu á stefnumörkun samtakanna sem samþykkt var á Búnaðarþingi 2022. Fimm starfsnefndir unnu að uppfærslum á málaflokkum stefnumörkunarinnar. Meðal helstu ályktana má nefna að samþykkt var að fela stjórn Bændasamtaka Íslands að taka þátt í stofnun heildarsamtaka í landbúnaði með Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Ályktað var um velferð bænda og dýra. Þörf sé á að koma á fót afleysingakerfi fyrir bændur, því skortur á slíkum úrræðum geti leitt til þess að bændur gangi of nærri sér, bæði andlega og líkamlega. Varðandi dýravelferð var ályktað á þá leið að mikilvægasta forsenda þess að sátt ríki í samfélaginu um að nýta dýraafurðir til matvælaframleiðslu sé að velferð dýranna sé tryggð af þeim sem um þau annast og að eftirlit með því sé trúverðugt, virkt og gegnsætt. Þá er í ályktunum mælst til þess að neytendur á Íslandi hafi möguleika á upplýstu vali þegar kemur að upprunamerkingum matvæla. Eru matvælaframleiðlendur hvattir til að upprunamerkja tilbúna rétti og unnar kjötvörur þótt þeim sé það ekki skylt samkvæmt reglugerð og að innlendir framleiðendur sameinist um eitt upprunamerki sem fari á sem flest matvæli. /smh Sjá nánar á bls. 2, 4 og 7. Búnaðarþing 2023: Uppfærsla á stefnumörkun

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.